…það er komið að því að halda SkreytumHús-kvöldið í JYSK á Smáratorgi á annað kvöld hjá honum Ívari, og við getum ekki beðið! En eins og svo oft áður þá ákváð ég að týna saman nokkrar af fallegu vörunum og stilla þeim upp hérna heima til þess að gefa ykkur smá hugmyndir og innblástur, svo er ég að verða ótrúlega spennt að sýna ykkur alla þessa fegurð sem er að koma í hillurnar núna.
…eitt af því sem greip strax augun var þessi hérna dásamlegi dúkur, og svo tauservéttur í stíl. Hann er svona hörlitur og með mildu mynstri, sem er samt svo jólalegt og skemmtilegt. Litlir pakkar, jólakúlur og piparkökukallar meðal annars…
…sérvétturnar eru líka alveg dásemd…
…síðan finnast mér þessar jólakrúsir og skálar algjör draumur sko, sérvéttur til í stíl, en þetta er æði!
…svo stílhreint og fallegt…
…og hér sjáið þið beint yfir á næsta svæði sem ég ætla að sýna ykkur…
…en ég var áður búin að sýna ykkur pottinn og vasann og með jólatré og greinum í, þá eru þeir ómótstæðilegir…
…svörtu hnotubrjótarnir eru líka svo flottir og sjálfri finnst mér æði að bæta við smá slaufu til þess að lífga aðeins upp á þá…
…þessi vasi er líka frá JYSK og geggjaður með greinunum, þær eru æði!
…en óvænt uppáhalds eru þessir hérna jólasveinabollar, en mér finnst þeir alveg dásamlegir…
…og þessi hérna jólatrésbakki er líka æði með, þetta er t.d. svona fullkomin kennara- vinnustaðagjöf. Bolli, sykurpúðar og kakó – lof it!
…sjáið bara hvað hann er flottur, svo er þessi þrískiptibakki líka alveg bjútífúl…
…yfir á eyjuna og þar höfum við geggjaða bakka á fótum og lítil hús og tré – á stærri bakkanum er síðan krans settur utan um kerti…
…er að elska bæði trén og húsin…
…færum okkur svo hingað og ég svoooo spennt að sýna ykkur…
…fyrsta er að nefna þessa dásamlegu púða, en annar er hvítur og hinn er grænn með gullstjörnum, teppið er síðan flísteppi með svona kaðlalook-i, svo fallegt…
…en þessi hérna tré eru alveg að trylla mig sko…
…sjáið þið bara hversu gordjöss þessi tré eru, en það er lítil led ljós innan í þeim…
…og enn fegurri rökkrinu sko…
Það verður 25% afsláttur af öllum vörum á fimmtudagskvöldið, svo sérvalin tilboð þar sem afslátturinn fer alveg upp í 50% – þessi tilboð eru hlutir sem ég hef verið að mæla með og er sérstaklega skotin í. Eins erum við með stóra og veglega gjafapoka, en þeir eru gefnir af handahófi yfir allt kvöldið.
Opnunin er á milli kl.20-22 í JYSK á Smáratorgi og ég hlakka mikið til þess að sjá ykkur! ♥
p.s. ef þú vildir vera svo dásamleg/ur að smella á like, svona af því að þú last póstinn og hafðir gaman að, þá yrði ég þér afar þakklát ♥