Núna um helgina er JYSK með “Big blue bag”-daga. En þetta snýst um það að fá stóra bláa, fjölnota innkaupapokann, skella honum ofan í innkaupakerru og fylla hann af því sem þig langar mest í. Allt sem þú kemur fyrir í einum poka, og getur haldið á honum, færðu með 20% afslætti – snilld!
…ég var náttúrulega að sýna ykkur allar fallegu nýjungarnar um seinustu helgi og því var það einfalt fyrir mig að stökkva inn, búin að hugsa um hvað ég vildi bæta í pokann minn…
…þið getið því kíkt á póstinn sem ég setti inn – smella hér!
…þannig að þegar heim var komið, þá kom þetta upp úr pokanum mínum:
…fyrst verð ég að nefna þessi nýju rúmföt frá Hoie, en þið sem þekkið þau vitið hvað ég á við þegar ég segi að þau eru alveg einstök. Svo mjúk og þægileg, og alltaf eins – sama hversu oft þið þvoið þau…
…ég stóð því ekki mátið og fékk mér þessi dökku, en hin voru reyndar sérlega freistandi líka. Þessi dökku voru bara að smellpassa inn í hjónaherbergið…
…annað sem var fast í hausnum á mér, var litla fallega skrautblómið, fannst það fullkomið í eldhúsið…
Smella fyrir skrautblóm!
Smella fyrir blómapott!
…og eins og ykkur grunaði eflaust, þá var ekki hægt að líta fram hjá græna batterýslampanum, fullkominn á ganginn…
…og svo höfum við staðið í smá stórræðum hérna heima og krakkarnir voru að svissa herbergjum. Það voru því nokkrir hlutir sem hentuðu alveg fullkomlega inn í “nýja” herbergi heimasætunnar.
…smá blóm gera allt betra, og enn betra ef hún þarf ekki að muna að vökva þau…
Skrautblóm – smella hér!
Pottur – smella hér!
…nýji vasinn er æðislegur á snyrtiborðinu…
Benny vasi – smella hér!
…litla vekjaraklukkan var æðisleg á náttborðinu…
Smella hér fyrir klukku!
…og að lokum stór karfa, þar sem hægt er að geyma
kósýpeysur, aukateppi – eða bara rúmteppið yfir nóttina…
Stór bastkarfa – smella hér!
…þetta gaf ykkur vonandi nokkrar hugmyndir, og smá forsmekk að nýja herberginu – meira um það á morgun! Ef þið viljið skoða eldri BigBlueBag-pósta, þá getið þið smellt hér!
Ég vona að þið hafið haft gaman að ♥
P.s. Annars langar mig líka til þess að biðja þig, sem þetta lest, að smella á like-takkann ef þú hafðir gaman að póstinum.