…það er gaman að segja frá því að það er búið að endurvekja: Skreytum Hús mælir með... inni á heimasíðu Rúmfatalagersins. En þarna inni eru vörur sem ég fæ að tína til og er sérstaklega hrifin af þessa dagana. En það er alltaf gaman að setja saman vörur sem skapa ákveðna stemmingu að sjálfsögðu er haustið í aðalhlutverki þessa dagana…
Smella hér til þess að skoða SkreytumHús mælir með!
…fyrst af öllu er það Kettinge höfðagaflinn. En hann er í stíl við hillurnar með sama nafni sem ég hef verið mikið hrifin af og notað (smella hér til að skoða).
…en hann er ekki bara flottur sem höfðagafl, heldur má líka setja þá upp á rönd og nota sem veggþiljur – snilld!
…Egelev-línan er búin að vera til í nokkurn tíma og er alveg sérlega falleg (smella til að skoða), hingað til hefur hún bara verið til í eikalit, en núna var að koma sjónvarpsskápur í svörtu – mér finnst hann æði, og vonast til þess að sjá eitthvað af hinum vörunum koma í svörtu líka…
…mottur eru auðveld leið til þess að breyta rými, og svona náttúrumottur eins og Solsikke þykja mér alveg sérstaklega fallegar. Sérstaklega fallegar líka með haustlitunum…
…púðar eru alltaf uppáhalds og þessi er nýr og mjög svo fallegur. Hann er ljós og hlutlaus, en skrautið gefur honum mikinn karakter og bóhófíling…
…fallegir speglar eru ekki bara til þess að spegla sig í, neineinei – þetta getur verið alveg fyrirtaks veggskraut og ef staðsett á réttum stað, jafnvel gert herbergin svo miklu bjartari og stærri. Þessi er sérstaklega fallegur, og ekki síðri þegar það eru settir nokkrir saman!
Smella til að skoða!
Svipaður í gylltum lit!
…þessir kertastjakar eru æðislegir, eitthvað svoldið sætir og sveitó. Hægt að hafa bæði sprittkerti og venjuleg!
…þessi hérna stóri græni vasi er æðislegur, hann er á óskalistanum mínum!
…skrautblómin í Rúmfó er alltaf að verða betri og betri. Þessi finnst mér svo falleg inn í haustið, gæti líka verið fallegt að setja í blómapotta út til þess að fá haustlitina eða jafnvel að nota í vasa!
…þessi strá og vasi er blanda sem bara getur ekki klikkað – dásamlega falleg!
Smella til að skoða strá!
Smella til að skoða vasa!
…marmarabakkinn passar alls staðar, baðið – eldhúsið – stofuna, alls staðar flottur!
…þessi blaðagrind er ný og ferlega töff, sniðug fyrir tímaritin eða jafnvel bara einhvers konar blaðaskipulag á skrifstofur…
…þetta teppi var að koma í þessum fallega ljósa lit inn í haustið, og þar sem ég hef átt græna teppið til margra ára – þá get ég mælt með því af öllu hjarta, svo mjúkt og kózý!
…alltaf gaman að fá nýjar pottahlífar og þessar eru æðislegar – allt í þessum fallegu mildu tónum…
Smella til að skoða!
Smella til að skoða!
…nýji uppáhaldsvasinn minn, úr brass og endalaust bjútífúl…
…haustinu fylgir alltaf meiri kertanotkun og þetta er alveg sérlega fallegt, svo er hægt að nota glasið fyrir sprittkerti þegar kertið sjálft klárast!
…lampar eru nú eitthvað sem maður getur stungið hér og þar, og mynda einmitt huggulega stemmingu í hauströkkrinu – mér finnst þessi mjög fallegur…
…svo eru náttúrulega bastkörfur alltaf sérlega falleg leið til þess að geyma alls konar góss, hér eru tvær sérlega myndarlegar…
…nú ef þið eruð með bekki eða skemmla, þá eru svona gærur alltaf snilldarleið til þess að koma inn með kózýfílinginn, þessar koma í mörgum litum og svo má bara henda þeim í vél – snilld!
…þetta hjólaborð varð að vera áfram, geggjað sem náttborð – flott í eldhúsið – barborð – eða bara fyrir blóm, gæti ekki verið betra!
…haustið er tíminn til þess að hengja upp gardínur og gera extra kózý, og þá koma þessar sterkar inn. Unnen eru í gráu hér, en sjálf er ég með þær hvítar í stofunni hjá mér. Austra eru til í mörgum litum úr velúrefni, þær eru æðislegar!
Unnen – smella hér til að skoða!
Austra – smella hér til að skoða!
..ef við færum okkur í eldhúsdeildina, þá er ég svo ánægð með nýja stellið…
…þessi diskur er síðan æðislegur líka, flottur fyrir alls konar…
…Harsyra-dúkurinn og servéttan er æðisleg, líka til í hvítu og er algjörlega tímalaus…
…og svo þarf auðvitað diskamottur – og þessar hérna, þær klikka ekki…
…Virum skápurinn fékk að sjálfsögðu að vera áfram á lista, en hann er alltaf svo flottur og sérstaklega þegar maður setur tvo saman…
…ég hef nú margoft sýnt ykkur og notað þetta skrautblóm, en það er mjög raunverulegt og passar bara alls staðar!
…eftirlætispúðarnir mínir, og þessir – þeir passa allir saman!
…vona að þið hafið haft gaman að – njótið helgarinnar ♥
P.s. Annars langar mig líka til þess að biðja þig, sem þetta lest, að smella á like-takkann ef þú hafðir gaman að póstinum ♥