…ég er svo ótrúlega heppin að hún Tanja hjá Myrkstore sendi mér pakka núna um daginn og ég bara verð að sýna ykkur hvað þetta er fallegt!
…Tökum þetta svona skref fyrir skref, fyrstur er það þessi geggjaði bakki, hann er úr svörtu áli – massífur og þungur – og alveg svo einstaklega fallegur í eldhúsinu að mínu mati…
…svo er það þessi geggjaðir blómapottur, úr sama efni, og stendur á þremur fótum…
…svo eins og alltaf, þá elska ég að setja með fallega nytjahluti – eins og olíuflösku…
…og geggjað salt…
Smella hér fyrir salt og olíur!
…síðan fékk ég alveg geggjaða piparkvörn…
…síðan er bara að setja fallegt blóm í, væri t.d. geggjað fyrir kryddjurt, og svo elska ég að hafa kerti á eyjunni…
Smella hér fyrir geggjuðu ilmkertin!
…svo setti ég dásamlegu gólfstjakana með – því þeir eru alltaf pörfekt!
…fyrir mér er þetta geggjað svona í eldhúsinu…
…allt svona nytjahlutir en samt svo fallegt saman…
…potturinn er líka æðislegur fyrir sleifar og annað slíkt…
…takk fyrir mig elsku Tanja, þetta er algjörlega fullkomið! Ég vona að þið eigið dásamlega helgi framundan ♥
P.s. Annars langar mig líka til þess að biðja þig, sem þetta lest, að smella á like-takkann ef þú hafðir gaman að póstinum.