…og takk fyrir veturinn! Þennan oft á tíðum langa vetur, þó hann hafi ekki verið mjög harður hér á höfuðborgarsvæðinu. En nú er bjartaði tíð framundan og allt lítur út fyrir að við séum að halda áfram að ferðast innanlands í sumar. Mér fannst því kjörið að deila með ykkur hreint dásamlegum borðbúnaði sem ég sá í Húsgagnahöllinni og hreinlega æpti á mig sumar og sól..
…segið mér nú bara að þetta vekji ekki upp blússandi sumarstemmingu, hvort sem það væri í útilegunni eða á pallinum…
…þetta vekur að sjálfsögðu upp netta Royal Copenhagen stemmingu og það er líka bara dásamlegt…
…það eru líka geggjuð glös og karöflur í sömu línu sem ég held að séu alveg bráðnauðsynleg með…
“Medusa línan er glæsilegur borðbúnaður úr plasti sem er fullkominn á pallinn eða í útileiguna 🤍”
…svo fæst geggjaður dúkur með…
…og auðvitað servéttur til þess að setja punktinn yfir i-ið…
…þið getið smellt hér – til þess að skoða allar Medusa vörurnar, sem eru 20% afslætti núna…
…úfff hvað ég er til í sumar og sól við að horfa á þetta!
…síðan rakst ég á þessa dásamlegu færslu frá henni Berglindi á Gotterí og gersemar, þar sem hún er að mynda þennan borðbúnað – og ég mæli með að þið skoðið hana, bæði til þess að sjá fallegar myndir og svo er hún alltaf með snilldar uppskriftir og hugmyndir! Smella hér!
Aðrar myndir frá Húsgagnahöllinni.
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur!
2 comments for “Gleðilegt sumar…”