…svona rétt til þess að vera memm. Ágætis byrjun á laugardegi, ekki satt?
Þessi hérna körfustólar, þeir eru æðislegir og litirnir eru hreint dásemd…
…og sennilega af því að ég er að fara í útilegu, þá fannst mér þetta ferlega sniðugt grill…
…algjörlega budget útgáfan af Pov-stjökunum, fullt til…
…og hreint æðislegur draumafangari…
…þessi vasi er svo fallegur, og gervi blómin þarna á bakvið, knúbbarnir eru í uppáhaldi hjá mér…
…fallegir gullbakkar…
…og litlir vasar með smá bling-i eru að gleðja…
…allir elska glerkúpla, já eða allir nema mágkona mín 🙂
…og þessar skálar og bollarnir í stíl, þið verðið bara að skoða þetta. Svo fallegir litir í þessum og poppa upp hvaða borðhald sem er…
…þessar skálar æpa á instagrammyndatökuna, með “rétta” morgunverðinum…
…og margar fallegar mottur, sumar sem mega vera bæði inni og úti…
…velúr hringpúðarnir eru í uppáhaldi…
…og bara alveg hellingur af púðum…
…og teppi í stíl…
…kann ekki að prjóna eða neitt slíkt, en svo flott…
…og í augnablikinu enn uppáhalds rúmfötin mín úr Rúmfó, enda eru þau alltaf eins og ný og svo mjúk og falleg…
…og bambus-stigarnir, úti eða inni – geggjaðir…
…þessi er búin að vera lengi til í grænu, en var að koma í þessum gráa lit og ég elsk´ann!
…og uppi á efri hæðinni á Smáratorgi, settum við upp útgáfu af stofunni sem var á sýningunni Lifandi heimili…
…þannig að ég mæli með að kíkja við og skoða aðeins…
…uppstillt og alls konar hugmyndir…
…fallegu blómastandarnir…
…og eitt af mínu uppáhalds, skemillinn sem er fremstur á myndinni – með gæru ofan á. Er sjálf með svona hér heima og er mjög skotin sko…
…endurskapaði hillurnar og speglana fyrir ofan af sýningunni…
…þarna sjást kertastjakarnir á vegginum…
…og mér fannst gaman að festa draumafangarann framan á vegghilluna…
…vona að þið hafið haft gaman af – knúsar í helgina ykkar og njótið þess að vera til ♥
P.s ef þú hafðir gaman að póstinum, þá þykir mér sérlega vænt um like-ið þitt! ♥ Eins er frjálst að deila þessu í allar áttir!