…loksins er það tilbúið! Tók helst til lengri tíma en við ætluðum, en er það ekki oftast raunin 🙂
En útkoman var eins og við höfðum planað, sem er snilld og það sem skiptir öllu máli – litli maðurinn er alsæll og unir sér löngum stundum sitjandi við skrifborðið sitt.
Hér koma svo nokkrar myndir – síðan koma sérpóstar um málningarvinnu, Ikea-hack x2 sem við gerðum og auðvitað hið sívinsæla, hvað er hvaðan!
…í sjálfu sér var lítið gert af pjatti þarna inni, hver hlutur er með tilgang…
…mikið uppáhalds eru auðvitað rendurnar á veggina og eru þvílík snilld – þó ég segi sjálf frá…
…mér finnst þetta breyta alveg hreint ótrúlega miklu…
…skrifborðsskipulagið. Þar sem borðið er ekki mjög djúpt, þá er fínt að vera með svona vegghengda hillu, sem tekur tekið dót sem annars tæki pláss af borðinu…
…svo er það auðvitað allt dótið – það þarf að koma því fyrir einhversstaðar og þetta var lausin okkar. Hillur málaðar í sama lit og veggurinn…
…á veggjunum hangir skraut, sem að m.a. var verslað í USA fyrir tveimur árum – ekki ráð nema í tíma sé tekið sko 😉
…og við byrjum og endum á sama stað – með honum Mola!
Hvernig lýst ykkur á, viljið þið ekki alveg sjá meira?
P.s. ykkur er alltaf frjálst að deila póstinum og ef þið smellið á like – þá verð ég sérlega glöð og kát í hjarta ♥
Hvaðan er heimskortið? Flott herbergi.
Takktakk – það fékkst í Hagkaup í Garðabæ, en það var reyndar fyrir jól.
Fallegt, greinilegt að Moli telur sig eiga þetta herbergi
Haha, eins og reyndar flest herbergi í húsinu 😉
Jú takk alveg endilega 🙂
♥
Eins og allt sem þú sýnir “okkur” allveg dásamlega fallegt 💙
Játs meira takk! Mig langar að vita hvaðan vegghengda hillan og gardýnurnar 🙂
Þetta er virkilega vel heppnað 🙂
Ég vil endilega sjá meira!
Vá fallegt… rúmteppið hvar fékkstu það?
Allt mjöööög flott eins og ég hef sagt áður…algjörlega gordjöss gauraherbergi….