…hér kemur svo annað innlit sem veittir mér hellings innblástur. Þetta fann ég hérna (smella) á Apartment Therapy.
Um er að ræða íbúð sem parið hefur aðeins búið í 2 mánuði. Aftur eru veggirnir ljósir/hvítir, og ekki mikið um liti, en samt sem áður svo mikill hlýleiki og kózýheit.
Stofan er uppáhaldið mitt, mottan og púðarnir, ásamt myndum á veggjum gefa svo mikinn karakter…
…svörtu rammarnir eru að gera svo mikið fyrir veggina, það væri ekki svipur hjá sjón ef þeir væru t.d. hvítir – þá kæmi alls ekki eins mikill karakter í rýmið…
…skemmtileg lausn þar sem Expedit-hillan er notuð sem höfðagafl, og mottan – hún er alveg möst…
…stundum þarf ekki annað en hillu og hillubera til þess að útbúa fallegt gangaborð…
…gólfin gefa líka hellings svip – og jájá, hlaðnir múrsteinsveggir koma aldrei að sök. Eins er gaman að benda á hversu fallegt það er að nota gyllta fylgihluti í gegnum alla íbúðina – en gullið/brons er líka að gefa mikla hlýju!
Eruð þið ekki skotin í þessu?
Image credit: Nicole Whitney
Vá hvað ég hefði viljað vera búin að koma mér svona vel fyrir eftir 2 mánuði!! 😀 En hrikalega kósý hús, þótt ég held að ég myndi nú velja venjulegan höfðagafl í stað Kallax hillu…. 😉