…því ég ákvað að smella af nokkrum myndum þar sem ég var nú að föndrast og skreytast hjá þeim í Kringlunni á fimmtudaginn seinasta. Þessar myndir eru nú reyndar úr versluninni þeirra í Skeifunni, en það kemur vart að sök þar sem sama úrvalið nokkurn vegin í öllum búðunum þeirra.
Vindum okkur svo í þetta…
…þessir hérna eru endalaust flottir og skemmtilegir í innpökkun, svo eru þeir líka bara bjútifúl í vírkörfu í hillunni hjá þér. Sko bara, fegurð og notagildi – það má nú réttlæta hlutina á ýmsa vegu, ekki satt?
…alls konar stafir og fínerí, þið ákveðið svo bara liti og mynstur…
…fjaðrir, því allir vilja haga sér eins og englar á jólum, eða rjúpur…
…og ríspappírinn góði, endalaust til af honum, jóló og ekki jóló…
…þetta eru náttúrulega bara svona dæmigerðir límmiðar, en svo auðvelt og gaman að leika með þetta í t.d. aðventuskreytingarnar…
…eins og td. þessi sem ég gerði í fyrra (sjá hér)…
…og hér…
…hér er líka ferlega flottir bakgrunnar og stafir í ljósaskiltin sem svo margir eru að fá sér…
…stimplar eru snilld, alltaf hægt að leika sér með þá sko…
…alveg dýr(ð)legir…
…og þessir finnst mér alveg geggjaðir…
…sérstaklega til þess að stimpla á svona töff pappírspoka sem fást einmitt þarna í nokkrum stærðum og litum…
…og svo auðvitað til þess að stimpla á svona merkispjöld og gera þannig skemmtilega merkimiða og annað slíkt…
…ok, þetta er nokkurs konar gervisnjór – sem er með glitri í – gleður mitt glamúrhjarta skal ég segja ykkur…
…og glimmer sko, ég er að segja ykkur það krakkar mínir, það er ekki hægt að eiga of mikið af glimmer í nóv. og des.
Reyndar ekki heldur í jan, feb og alla hina, en þið fattið hvað ég meina…
…en þessi – þessi er uppáhaldið mitt!
Sindrandi, sáldrandi, glimmrandi töfraduft sem gerir hvaða gervisnjó sem er að ævintýralandi og meira til – amen!
…skrautlímbönd – hengja upp myndir? festa á kerti?
Ekkert sem stoppar þig nema ímyndunaraflið sko…
…stenslar! Stenslar eru snilld…
…fullt af flottum bökkum og alls konar sem hægt er að stensla á og breyta einföldum hlut í listaverk, einmitt að þínum hætti og eitthvað til þess að gefa henni Rut frænku sem á ALLT!
…nú ef þig hefur alltaf langað til þess að eiga lítið sætt timburhús, þá er hérna tækifærið og fasteignagjöldin í lámarki…
…þessi hérna finnst mér hreint geggjuð!
…enn sætari þegar búið er að hengja á þau – og svo má auðvitað mála eftir kúnstarinnar reglum…
…hér sjást nokkrir af Rub-ons-unum og límmiðum, sem er hægt að nota til þess að skreyta svo margt…
…og hér eru einmitt hjörtun og stjörnurnar, sem ég notaði hér…
…og svo er það sko allt jóló-ið…
…þessi hérna var mikið að stara á mig og vildi koma með heim – ég beitti fádæma hörku og sjálfstjórn, og skildi greyjið eftir…
…enda var bróðir hans þarna rétt við hliðina, hann heitir Páll Óskar sko…
…pappakúlurnar frá House Doctor, alveg rosalega fallegar…
…ohhhhhh og þessir hérna – luvs…
…ég á þessar sko, nokkrar svona – og mér finnst þær æðislegar…
…og meiri stjörnur, og tré…
…þessir eru æðislegir – ég notaði þá á fimmtudaginn og ætla að sýna ykkur í pósti síðar í dag, eða aðeins síðar 😉
…sjáið bara þetta krútt!
…já og bara alla hjörðina…
…yndis!
Endalaust af fínerí-i, svo er líka vert að benda á að í Skeifunni, þar sem þessar myndir eru teknar, er útsölumarkaður – sem er stútfullur af alls konar snilldar föndur og jólódóterí-i!
Svo fyrir allar úti-á-landi-skvísur og auðvitað herra, þá má kíkja bara beint á heimasíðuna A4.is.
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum og svo má auðvitað deila honum ef þið hafið hug á!
Ó hvað þetta er ljómandi fallegt! Og er alveg sammála þér…maður á aldrei nóg af glimmeri 😉