…ef svo má að orði komast!
…systkin sæt og prúð, reiðubúin fyrir gamlárskvöldið…
…heiðarleg tilraun til myndatöku með Storminum…
…nýársmorgunhádegi og því kjörið að gera vel við sig í mat og drykk…
…jarðaberin eru möst…
…og svo voru það amerískar pönnsur! Endilega takið eftir skálinni með Nóa-konfektinu, bara svona til vara ef foreldranir þyrftu að ýta upp sykurstaðlinum, svona til að halda þessum átdampi uppi…
…lítið jólaþorp í “búri”…
…og hillan okkar í stofunni varð öll “jóla”…
…gamla yndislega kirkjan mín…
…baðið varð auðvitað jólað líka…
…alveg hreint nauðsyn að vera með þessa “skrauthillu” þarna uppi við…
…og auðvitað rétti lagstúfurinn að raula á meðan fólk tyllir sér á dolluna – muhahahah!
…og lítið sætt jólahús og tré meððí…
…uppáhalds gömlu, glitrandi trén mín – og sjáið bara hvernig kökudiskur hækkar annað þeirra – svo þau standi nú ekki jafnfætis…
…jólaborðið á milli “stríða”…
…og næsti póstur – jólatréð!
Yndi…maður fær alltaf svona rólegheitatilfinningu þegar maður skoðar myndirnar þínar og les póstana með…
♥