…svona í tilefni kvöldsins- Rúmfó á Korputorgi (endilega smellið á þau like-i)!
Þessar finnst mér ferlega flottar…
…en uppáhaldið mitt er allt þetta hvíta og fallega skraut…
…krúttaralegar uglur…
…æðislegir stjakar…
…og þetta stóra glerhús er yndis, svo ekki sé minnst á Home-luktina og dýrin…
…allt í fallega hvítu…
…bakki á fótum sem er alveg ótrúlega flottur…
…jólatré með ljósum…
…æðislegar luktir og silfur hreindýr…
…awwww rebbakrútt…
…þessi kertaglös eru alveg ferlega flott…
…falleg tré…
…og enn fleiri tré…
…stjörnur með ljósi innan í…
…hérna sjáið þið litina tvo á kúlunum sem ég setti á bakkann í pósti gærdagsins – þær eru alveg æðislegar…
…dásemdar húsin…
…þessir hérna geta nú auðveldlega krúttað yfir mann…
…ok, það er sem sé til nóg af hreindýrum…
…þessi eru ekki jóló en dásamlega haustleg…
…allir þessir falleg glerkúplar nýtast nú vel allt árið…
…og hér er stjörnufans, eins og ég notaði í eldhúsgluggann í fyrra…
…myndi vilja setja svona á alla jólapakkana í ár…
…geggjað í strákaherbergin…
…þessi eru nú ansi sæt…
…og dömunni minni fannst sko svona LOVE (lesist alveg eins og það er skrifað 😉 ) alveg æðislegt…
…þetta er sko kósý ljós – það stendur meira segja á þeim…
…flottar td. í barnaherbergin…
…yndisgínur…
…litlu bollarnir sem ég notaði hér – smella…
…og nammidiskur á fæti…
…og krukka…
…þessir bollar finnst mér æðislegir – sérstaklega í vinnustaðagjafirnar…
…fyrir glamúrgellurnar…
…sætustu rúmteppin í stelpuherbergin…
…og fyrir okkur gærurnar 😉
…ég er með svona grátt inni hjá dömunni minni, og þessi trjáteppi eru algjör draumur…
…líka til með hreindýri á…
…jólalöber…
…og töff púðar…
…glamúrpúðar…
…dýrapúðar…
…og svo er það þessi jólapúði…
…mér finnst hann algjör æði!
…og þessi rammi/hilla er alveg ferlega flott 🙂
…svona vírkörfur eru svo alltaf alveg dásamlegar og passa fyrir alla árstíðir…
…en mér fannst viðeigandi að setja eplin í hana núna…
…en það er sem sé SkreytumHús-kvöld í Rúmfatalagerinum á Korputorgi í kvöld kl 20.
Það verða fínir afslættir og vörur á sértilboði, og ég verð á svæðinu og búin að stilla upp á nokkrum borðum í mínum stíl.
Til þess að skrá ykkur – þá þurfið þið að vera í SkreytumHús-hópnum (hér er hann) og þar er hægt að skrá sig á kvöldið í kvöld (smella hér).
Hlakka til að sjá ykkur í kvöld 🙂
Oh – vildi ég gæti verið með ykkur í kvöld, fékk alveg illt í langarann – allt svo fallegt 🙂