…og ekki eftir neinu að bíða…
…og fegurðin heldur svoleiðis áfram af fullum krafti…
…og aftur bara einfaldar og fallegar skreytingar, því stundum þarf bara að hengja upp tvær jólakúlur eða skauta til þess að ná réttu stemmingunni…
…svo ekki sé minnst á vængina og stjörnurnar…
…nú eða hengja upp kórónukertastjaka…
…yndisleg stemming…
…þessi hérna er líka æðislegur – og ekki bara jóló…
…svo er það þetta mercury-silfur sem er svo heillandi, maður getur alveg séð þetta fyrir sér á milljón vegu…
…fallega búð…
…svo gaman að sjá hvað það þarf “lítið” til þess að jóla – bara greinar í vasa og lítil jólatré og maður er komin í fíling…
…mér finnst ramminn og stjörnustjakinn yndislegt…
…og meira “silfur” heillaði…
…dásemdar skartið hennar Söndru G…
…alls staðar er eitthvað fallegt að horfa á…
…eitthvað yndislegt…
…fallegt frá öllum sjónarhornum…
…sé eftir að hafa ekki fengið mér svona stjörnur, og þessi spegill, jeminn…
…þarna er hún sko…
…mig dreymir enn um þessa skál, alveg síðan í sumar…
…stjörnur og snjókorn, ég er kát…
…það væri nú hægt að týna af sér gullin í svona fínerí…
…og nóg er til af höldum…
…dásamleg lítil hús…
…þessir finnst mér ansi hreint krúttaðir…
…og ennþá sætari þegar þeir eru komnir í skreytingu…
…flottir þessir svörtu stjakar – minna á Nagel kertastjakana, lítill stjörnustjaki og fallegur húsastjaki…
…þessar eru flottar í glerkrukkurnar, til þess að moka upp Cheerios-inu…
…og meira krúttað úr krakkahorninu…
…ég held að þið sjáið það núna, að ef þið eruð að fara norður – þá er það sko skylda að koma við í þessari dásemdarbúð…
…svo er hægt að fylgjast með Sirku á Facebook (sjá hér) og ég veit að þær senda um land allt ef þið sendið skilaboð eða hringið!
Annars segi ég bara eigið góða vinnuviku
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur – eins má sko deila þessu í allar áttir, alveg ókeypis!
Er líklega að fara norður í byrjun nóv…veit ekki hvort ég á að þora þarna inn 😉