…og best að ljúka þessari trílógíu.
Seinasta pósti lauk þegar krakkar og kall búin í sundi (friðurinn úti haha) og við nutum þess að vera saman!
…enda er einstaklega fagurt um að líta þarna…
…og enn eru það blessuð húsin sem heilla…
…hvert öðru huggulegra…
…og svo girðingar eru náttúrulega bara dásemd…
…einhverjir í myndatöku – ekki við sko…
…og mér fannst þetta alveg dásamlegt hús – liturinn…
…og við ákváðum að stoppa til þess að mynda meira…
…og fórum þá að horfa niður fyrir okkur…
…dóttirin tók andköf yfir öllum þessum hörpuskeljum
…alsæl – skeljar og ís, gerist varla betra!
…haha, sjáið bara…
…og svo voru þær fallegustu valdar…
…vanda þurfti valið…
…og velja einmitt réttu litina…
…síðan sá hún glitta í “einmitt réttu skelina” neðarlega í brekku – þá tók pabbinn þetta áhættuatriði fyrir snótina sína, hvað gerir hann ekki fyrir hana!
…síðan var nú reyndar tekið að blása og því kjörið að bregða peysum yfir sig…
…svo ótrúlega fallegar frá elsku tengdó ❤
…og svo var farið í labbitúr…
…dóttirin eyddu sumrinu að miklu leyti í að fullkomna handahlaup…
…með tilhlaupi…
…og okkur fannst stundum eins og við sæjum meira undir sólana á skónum en framan í hana…
…og þessir tveir hlaupa saman – sáttir mjög…
…ahhhhhh sumarið – það er tíminn!
…og já – takk fyrir frábær viðbrögð við pósti gærdagsins, þið eruð yndi!
Ég lofa að reyna að vera skemmtilegri á morgun, er með alls konar fjútt í gangi sem ég þarf að henda í pósta fyrir ykkur ❤
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur!
Yndislegur póstur! Finnst pabbinn algjör hetja að fara niður skeljabrekkuna og ótrúlega duglegur að finna réttu skelina 😉
Gordjöss myndir mín kæra – greinilega við misstum af miklu (“,)