…eða draumur! Eða hvað skal kalla það ❤
Stundum þá fæ ég í mig svona “dillur”, eitthvað sem ég fer ósjálfrátt að leita að og leita eftir. Það sem hefur herjað á huga minn undanfarna mánuði var gömul ritvél. Ekki spyrja mig hvurs vegna – þær eru bara svo flottar og einfaldlega bara var þetta svona “ég vil-dæmi”!
Versta er þegar maður fær svona sniðugar hugmyndir sem að “meika” engann “sens” í augum húsbandsins. Sjáið til, stundum er hægt að réttlæta hlutina:
gamall stóll = sitja á honum
gömul kanna = fín fyrir blóm
nýjar gardínur = það þarf eitthvað fyrir þessa glugga ekki satt?
gamall dúkkuvagn = geymir bangsa, dúkkur eða bara teppi og púða
Gömul ritvél = ehhhhhh, til að skrifa þér bréf ástin mín? eða nei, hugsa að hún virki ekki, sendi þér bara sms 🙂
Svo varð nú úr að eftir langa leit, sem var þó ekki eiginleg leit, meira svona litið eftir. Þá fann ég þessa elsku á Antík og Vintage hlutir til sölu á Facebook.
Húrra! Þetta var meira segja á afmælisdaginn minn sem ég fékk hana afhenta og beint heim með gripinn. Eftir smá umraðanir, þá var hún komin á “réttan stað” og ég var alsæl…
…og ég verð að segja að mér finnst hún alveg dásamleg!
…síðan, af því að ég átti afmæli – þá kom yndisleg vinkona mín færandi hendi og gaf mér alls konar dásemdir úr H&M Home, skrítið – næstum eins og hún þekki mig eitthvað. Þar á meðan var alveg forkunnarfagur blúndulöber, sem ég varð að skella á borðið…
… og mér finnst hann alveg pörfekt með, svona blúndó og kvenlegur á móti vélinni…
…og þarna eru nú orðnir nokkrir vintage hlutir, sem mér finnast vera svo dásamlega fallegir…
…á móti öðrum og nýrri, eins og bara púða og teppi í svörtu og hvítu, til þess að fá smá svona módern með…
…á móti þessari hérna…
…og þessum sem eru reyndar nýjir, en gömul og klassísk hönnun. Finnst safnið mitt vera nokk fullkomið núna – þar sem ég er komin með 5 stk (bættist) við einn sem ég fékk í afmælisgjöf frá famelíunni…
…þeir eru svo flottir ❤
…og það er sú gamla líka…
…og mér fannst algert möst að setja blað í vélina og ekki var hægt að hafa það autt…
…og ég ákvað því að setja uppáhalds ljóðið mitt eftir Jónas Hallgrímsson á blaðið, með svona gammel ritvélaletri…
…leturgerðin heitir 1942 report og ég googlaði bara eftir fríu letri sem ég hlóð niður, þið getið fundið þetta hér (smella), og svo var þetta bara sett upp í Word…
…og prentað út og útkoman var þessi – og krakkarnir elska að hamra á vélina og láta eins og þau séu að skrifa bréfið…
…það sniðuga við þetta, er að allir sem að sjá vélina og blaðið, spyrja um þetta 🙂 Þetta er einn af þessum hlutum sem flestir virðast taka eftir og verða mjög spenntir yfir. Þetta er það sem á “góðri íslensku” kallast conversation piece!
…ég er í það minnsta kátari en skáti á skátamóti, syngjandi 🎵 🎶 Úmbarassa🎵 🎶 og klappandi með!
Ert þú kannski að fara að leita að gamalli ritvél? eða stenduru við hliðina á húsbandinu, sem brosir góðlátlega og hristir hausinn 🙂
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur!
Vá!! Hún er (eins og sagt er á góðri íslensku) gordjöss!! 🙂 Smellpassar á borðið og æðislegt að hafa gömlu ferðatöskurnar undir…maður er bara kominn eitthvert lengst aftur í tímann… 🙂
Til hamingju með flottu ritvélina þína! 🙂
Ritvélin er dásemd og skil þig vel að hafa fallið í stafi yfir henni 😉
Vintage og modern eru galdrar saman og með þínu handbragði verður allt einfaldlega dásamlegt ♥
Til hamingju með ritvélina, þú varðst á undan mér! Ég sá hana inná síðunni en þá var hún farin! Ég er með sama drauminn um svona gamla ritvél, þessi er fullkomin! Takk fyrir yndilegu pósana þína:)
Kveðja
Sigga
Yndisleg færsla 🙂 Búiin að brosa út í eitt við lesturinn. Gullfalleg ritvél og skemmtilegur fontur. Til hamingju með afmælið 🙂