…lítill drengur fagnar 5 ára afmælinu sínu í dag!
Það er alveg með ólíkindum hvað þessi tími flýgur hratt áfram.
5 ár síðan hann kom í heiminn, 4720gr og 57cm…
…þessi yndislega tilfinning að fá hann loks í fangið…
…þegar að stóra systir hitti loks “litla” bróður sinn…
…að koma með hann heim og kynna hann fyrir restinni af fjölskyldunni…
…við kynntumst þessum litla manni…
…öruggur í höndunum hans pabba…
…og við urðum fjögra manna fjölskylda ♥
…fallegi strákur!
…þessi tvo eru alltaf að bralla eitthvað saman…
…og sumir verða stundum fúlir…
…en það stendur afar stutt…
…og þrátt fyrir að dragast stundum aftur úr…
…þá ná þau saman á áfangastað…
…en þegar maður skoðar heiminn…
…þá dettur maður stundum og verður smá skítugur…
…en það er í lagi þegar að pabbi er til staðar og leiðir mann á öruggan stað…
…það er líka ótúlegt að sjá hversu mikið lítið fólk breytist á milli ára…
…en ágætt að famelíur séu með ákveðna uppstillingu fyrir myndatöku 😉
Hann er náttúrulega bara dásemd…
…og auðvitað þau bæði!
Á þessari mynd eru þau einmitt bæði með bangsa/teppið sem þau hafa verið með, og tekið ástfóstri við, þegar þau voru bara pínu lítil.
Elsku hjartans drengurinn minn…
…haltu áfram að vera svona góður við allt og alla…
…haltu áfram að líta á björtu hliðarnar…
…haltu áfram að teikna, skrifa, lita og skapa…
…haltu fast í besta vininn…
…haltu áfram að gefa þér tíma til þess að skoða í kringum þig…
…að hlaupa frjáls og skemmta þér…
…og mundu að það er alveg ókeypis að …
…B R O S A 🙂
…ég mér þá ósk heitasta að þið tvö haldið alltaf áfram að vera eins náin og góð við hvort annað og þið eruð í dag ♥
…og að allir þínir draumar rætist!
Til hamingju með daginn litli ljúfur ♥
Þú ert yndið mitt yngsta og besta,
þú ert ástarhnossið mitt nýtt,
þú ert sólrún á suðurhæðum,
þú ert sumarblómið mitt frítt,
þú ert ljósið sem lifnaðir síðast,
þú ert löngunnar minnar Hlín.
Þú ert allt sem ég áður þráði,
þú ert ósk, – þú ert óskin mín.
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum!
Fallegur strákur og fallegur póstur.
Til hamingju með soninn.
Til hamingju með afmælisdrenginn þinn.
Yndisleguar myndir og skemmtilegur póstur, til hamingu með drenginn 🙂
Til hamingju með gullmolann þinn 🙂 … ykkar 😉
🙂
Fallegur póstur um fallegan og yndislegan dreng <3 Innilega til hamingju með hann og njótið dagsins 🙂
Yndislegur póstur, mér vöknaði um augun. Innilega til hamingju með yndismolann ykkar
Yndislegur hann Gæsi og þau bæði <3
Til hamingju með fallega gullmollann 🙂
Innilega til hamingju með gullmolann þinn! Mikið var þetta falleg færsla, bæði í myndum og orðum! dýrmætt 🙂
Fallegur póstur Soffía mín, til lukku með Gæjann 😉
Afmæliskveðjur frá okkur í Mosó 🙂