er með frábært verkefni handa ykkur frá blogginu The Parlour.
Það sem að maður finnur ekki á netinu. Hér er dama sem að ákvað að útbúa sér borðstofuljós. Fékk sér einfalt pappaljós, held að svipuð fáist í Ikea. Kíkið nánar á þetta hér & hérr
Varð sér síðan útum birgðir af kaffipokum og límbyssu..
síðan hófst hún handa og vantaði aðeins slatta af þolinmæði..
þegar að 1200stk voru komin á ljósið kom í ljós að meira vantaði..
en verkinu lauk að lokum og fremur fönkí ljós leit dagsins ljós!
Bara flott – verst að geðheilsan er sennilega farin að verki loknu 🙂
Váh þetta er rosalega sniðugt.. kannski maður ætti að skella sér í þetta ;D
kv. Kristín (sem er orðin sjúk í þessa bloggsíðu en þekkir þig ekki neitt) 😉
Velkomin Kristín, bara gaman að fá “félagsskap” 😉
Töff, en er forvitin um hvernig lýsing kemur í gegn…
Ætli það sé ekki bara málið að hafa nógu sterka peru í þessu 🙂
JIMINN en fallegt.. úff og þvílíkur tími sem hefur farið í þetta ljós:)
Geðveikt sniðugt !! en ég átta mig ekki alveg á því hvernig þú setur kaffipokann á ?
Klippiru hann eitthvað ?
kv. Ásta
Oh my god – ég gerði þetta EKKI!!! Jeminn, þetta er þvílíka klepparavinnan 🙂
Ég tek eftir því núna að linkurinn virkaði ekki í póstinum, set hann inn aftur og þá geturu kíkt betur á þetta. Sýnist hún bara líma niður “botninn” á kaffipokanum.
Annars sérði þetta hér: http://www.parlourhomeblog.com/2010/10/sneaky-peak-new-dining-fixture.html