…elskulegu, yndislegu, dásemdar Sirku!
Ef þið gerið eitt stopp á Akureyris-inu þá er þetta það 🙂
…þessi búð er ekki stór, ónei – en hún er svo endalaust full af dásemdum að það hálfa væri sennilegast alveg meira en nóg…
…t.d. tel ég það næsta víst og alveg öruggt að maður hljóti að verða royal við að nota svona dásemdar sápupumpur – það er bara þannig…
…og svo er það þetta – ég á sjálf svona kefli og skæri – og mér finnst þetta yndis…
…ljósin, kona góð, ljósin!
…ég meina það sko, þetta ætti nánast að vera ólöglegt að vera svona fallegt ljós!
…skraut er nauðsynlegt í glerboxin – og nóg er að finna hér…
…og ekki bara í glerboxin, heldur líka á mann sjálfa. Finnst þessi standur líka æðislegur…
…og ef þið náið að líta niður frá þessari dásamlegu krítartöflu/hillu/snagabretti og þá sjáið þið….
…taaaaadaaaaaaaa…
…ef þið eruð að leita að húnum – þá fást þeir hérna!
…nánast allar gerðir og litir undir sólinni…
…ójá – alls staðar er eitthvað að sjá og skoða…
…og þessir sprengja alveg dúlluskalann, eða í það minnsta hækka hann töluvert!
…og ég er alveg að fara á límingunum yfir þessum – báðum týpunum…
…ef ég ætti ekki 354 kökudiska, þá væri þessi fluttur inn…
…meira bjútífúl á baðið…
…eða bara bjútífúl alls staðar…
…svo er um að gera að muna að líta í alla króka og kima – því að alls staðar leynast gullin…
…og auðvitað kertin…
…ég á mér draum um að þessi skál verði mín, einn góðan veður dag…
…og luktir!
…og meiri luktir…
…miðað við ást mína á kórónum, þá tel ég næsta víst að ég hefi verið prinssessa í fyrra lífi…
…svona borðakefli finnst mér svo falleg. Verst að þegar ég fæ mér svona, þá verð ég svo skrambi nísk á borðana 🙂
…því að þeir eru svoooooo krúttaralega sætir svona!
…uppáhalds var þessi sem er eins og málband og þessi með nótunum…
…endalaust fallegt, og þarna er krummaherðatréð hennar Ingibjargar Hönnu og sómir sér vel 🙂
…loflí lyklar…
…þetta er dásemd…
…varð hrifin af litlu kórónunni á speglinum, þarf að gera svona eitthvað við spegilinn í svefnherberginu…
…þessi lampi og spegill – æðislegir…
…og allar þessar festar…
…bara fallegt…
…fallegu límmiðarnir frá www.mosi.is…
♥
…enn fleiri luktir og fallegt þetta litla tréhús…
…og þarna er hún, gersemin mín sem ég varð að taka með heim og myndaði hér og þar á leiðinni ♥
…og þetta þótti mér hreint dásemd…
…og svo er hin dásamlega Sirka – þið bara verðið að kíkja…
…þið getið kíkt á Sirku á Facebook með því að smella hérna…
…en ef þið eruð á Akureyri þá er búðin staðsett á Skipagötu 6…
…dæææææs – spurning um að flytja bara norður?
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum!
Held það sé spurning um að flytja bara í Sirku! 😉 Og kommon…það að eiga ekki nema 354 kökudiska er nú léleg afsökun! Hefurðu ekki heyrt um prinsessuna sem átti 365 kjóla? Þig vantar að minnsta kosti 11 kökudiska í viðbót, mögulega 12 svona þegar kemur hlaupár! Mæli með að þú skoppir norður og verslir þennan…eða hafir bara samband við elskurnar í Sirku og þær senda þér hann bara 😀
Takk fyrir þennan póst 🙂
Akkúrat til að muna eftir að ég þarf að fá mér hnúða í breytingar hjá mér 😀 😉 Ég bý á Akureyri liggalligga láá nei oki djók 😀