…því að ég bara á eftir að sýna ykkur hitt og þetta.
Þetta er bara svona almennt ráp, farið í Bilka og Fötex og hinar og þessar búðir sem finnast víða í Köbens-inu.
Hér er nú t.d. Bahne, sem ég hef áður sýnt ykkur innlit í (sjá hér)…
…en ég ákvað að leyfa þessum myndum að vera með hér líka…
…sér í lagi út af þessum hérna vegg, sem mér fannst þvílíkt flottur…
…fannst líka gaman að sjá að þeir selja alveg eins krukkur og fást í Rúmfó 🙂
…hér erum við í Fötex og þessar fannst mér æðislegar. Vildi óska að ég hefði tekið haug af þeim með mér heim og hengt upp í tré á “pallinum” mínum, sem ég á ekki enn…
…lofðem…
…síðan voru það þessir hérna púðar – sem mér fannst svo sumarlegir og yndislegir…
…og að blanda þeim með þessum hérna – bara kósý…
…í Bilka sá ég þessar könnur, og ég sver það – ég hefði viljað allar þrjár með mér heim. Fannst bara eins og nafnið mitt væri skrifað á þær…
…fór svo að skoða þær nánar, og jújú – nafnið mitt er skrifað á þær 🙂 haha
…hverja og eina einustu…
…litlir diskar í stíl…
…sömuleiðis merktir mér – alltaf svo næs allir í Danaveldi…
…krúttaðar krukkur sem ég var alveg að klappa smá…
…og svo þessi – heeyyyyyy, þau fengust líka í Rúmfó…
…uglur í stuði, þessar létu reyndar allar eins og þær sæu mig ekki – dónar!!
…og þessi kertahús – pastellitir og gleði…
…meiri pastel pallagleði – bara næs…
…svo voru það svona steypt hús með koparstrompi – fyrir kertin…
…og hefði ég ekki verið í sjálfskipuðu servéttubanni – þá hefði þessi komið mér heim. Þetta var krúttleg moldvarpa í réttum lit fyrir mig og með script…
…og enn fleiri týpur…
…æðisleg rör og nammipokar í stíl…
…eða þið vitið, í stíl, en ekki of mikið í stíl – alveg eins og þetta á að vera…
…uglupúðarnir þóttu mér frekar sætir…
…og fílarnir ekki síðri. Þessi minni á vin sem hefur fengist í Tiger…
…síðan voru æðisleg sumarteppi, svona vatteruð, sem eru snilld sem rúmteppi…
…og mér fannst þetta svo spennandi – sérstaklega með doppunum hinum megin…
…svo er ég hér í Inspiration, og þar er alltaf gaman að skoða…
…það var “glermarkaður” í gangi og skemmtilegt að sjá hvernig þeir voru að blanda alls konar vösum saman…
…allt svona þykkt – smá gamaldagsgler – mjög fallegt…
…og skemmtilegt að sjá alls konar í þeim…
…mest langaði mig bara í þessi gervitré sem þeir voru með – en því miður, ekki til sölu…
…og ekki heldur þessar greinar – sem mér fannst líka dásamlegar!
Knús inn í daginn ♥
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum!
Mér finnst að maður eigi að sleppa öllum bönnum, eins og t.d. servíettubanni, þegar maður er í útttlöndunum. Svona bönn gilda bara í því landi sem maður setur þau 😉
Gaman að kíkja svona til úttttlanda á þriðjudegi 🙂