…en þessi er á Amager og heitir Den Blå Hal. Það er opið um helgar og kostað 10dkr inn og er bara skemmtilegt…
..strax þarna er ég farin að kætast! Ég elska svona gamlar nytjavörur…
…mér fannst þessir diskarekkar alveg yndislegir og sérstaklega hefði ég viljað kippa þessum hvíta með mér heim…
…yndislegt snyrtiborð, og stóll, og spegill…
…talandi um gamla stóla – þarna er víst nóg um stóla…
…sjáið bara hversu fagur þessi hérna er – hann gæti verið fyrirtaks sjónvarpsskápur…
…gamlar töskur – nóg til af þeim og hver annarri fegurri…
…var að leyfa þessum að fljóta með – þar sem svo margar hafa verið að mála þennan hérna heima…
…og svo var það allt leirtauið – ég hefði getað rápað um og skoðað það alveg endalaust…
…þvílíkur skápur!
…veit ekki hvort að hún Jennifer Aniston mín myndi samþykkja að vera seld svona á antíkmörkuðum, en svona er víst lífið…
…alls konar klukkur og meððí…
…sérstaklega fallegar standklukkur…
…auðvelt að finna fallegar myndir til þess að blanda með og gera myndaveggi – sem eru alltaf skemmtilegir…
…prentarahilla eða setjaraskúffa, eftir því hvað þið kallið þær…
…og jeminn – og þá gáfu hnén sig alveg…
…awww, þessi var alveg yndisleg…
…nú og ef kertastjaka vantar – þá finnast þarna einn eða tveir…
…og meira stál…
…og allt þetta gamla gler – ég elska svona…
…þessi hérna – mig dreymir hana ennþá. Þetta var alveg eeeeeldgamalt stell og þvílík fegurð…
…heilagur andi og allt það…
…og allir þessir gömlu veggdiskar…
…ójá…
…bráðvantar að fara með gám þarna út og smekkfylla hann…
…sjáið bara allar þessar könnur – þær voru hver annarri fallegri…
…kassar og borð – allt eitthvað sem passar alls ekki í ferðatöskur :/ …
…og enn og aftur – talandi um ferðatöskur!
…grínlaust, þá væri hægt að kramsa þarna dögum saman og finna alltaf eitthvað nýtt…
…þetta hérna fannst mér yndislegt, og svo er hægt að lyfta upp og þá er þetta barnastóll…
…svo er þetta bara töff…
…og speglarnir manni minn, sjáið þessa tvo!
…núna dreymir mig um svona gamla ritvél – og þessi stóri stálhestur – hann var alveg yndiz!
…þetta var borðkertastjaki, og vá hvað ég sá hann fyrir mér á borðstofuborði – helst um jól og með viðbættu smá greni með…
…svo er það náttúrulega klassíkin í Köben, hvíta og bláa leirtauið…
…og sumt alveg eeeeeldgamalt…
…innri gramsarinn kemst alveg í yfirgír…
…og alls konar hugmyndir vakna…
…ohhh – hvaða dama ætli haft þetta á snyrtiborðinu sínu…
…elsku besta vinkona mín var orðin alveg skítlasin, og sat og svaf á meðan ég gramsaði og gramsaði – þetta er sönn vinátta ♥
…og hefði ég getað, þá hefði ég tekið þessar með mér heim líka ♥
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum!
Skal deila gámi með þér…ef þú heldur að það sé pláss 😉 Sá alveg voðalega margt fallegt þarna 🙂