…eða eruð þið kannski komin með nóg af Köben-póstum?
Í það minnsta, þetta er alltaf jafn dásamlegt að komst í þessa fallegu verslun. Ekki fannst mér leiðinlegra þegar að ég komst að því að Center-ið í Fredriksberg, þar sem ég dvaldi, var búið að stækka verslunina sína þar og hafði bæst við Home-deild, húrra! Síðan kíkti ég líka í Home-deildina á Strikinu og í Fields.
…áður en ég fór í búðina sjálfa var ég að sjálfsögðu búin að liggja yfir heimasíðunni og var mikið að horfa á þessi hérna. Langaði svo mikið í þessi inn til litla mannsins – finnst þau æði – en keypti ég þau? Neiii, skrambans skynsemin bar mig ofurliði og ég ákvað að þyrfti ekki meira af rúmfötum. Ég er svoddan kjáni!
…þessi kanna fannst mér líka dásamleg, og skálarnar líka – en því miður hamlaði það mér, tilhugsunin að koma þessu heim – sem og þessi almenni skynsemispúki sem sat á öxlinni á mér og hvíslaði ég þyrfti ekki meiri könnur – leiðindi eru þetta!
…þetta sá ég alveg fyrir mér til þess að hafa í garðhúsgögnunum og svo fallegir litir…
…og aiðvitað fékk konan með púðablætið kast og fanns allir púðarnir fallegir – nema hvað!
…en vindum okkur í búðina sjálfa…
…og tökum bara andköf yfir þessari fegurð. Eftir á að hyggja þá horfi ég á þessa mynd og skil ekkert í mér að kaupa ekki púðann með skrautinu og þetta fallega teppi – ég var greinilega ekki að standa mig!
…þetta er í búðinni í Fields…
…og ég verð að ítreka þaðað þetta er hættulegt fyrir púðakonur eins og mig…
…ég var t.d alveg harðákveðin í þessum, en samt urðu þau eftir…
…ég ber því eiginlega við að ég hafi þjáðst af valkvíða…
…ég sá nú nokkrar dömur fyrir mér fá í hnén við þessi hérna…
…fuglar og fuglabúr – annar veikleiki…
…krúttaðar krukkur…
…og þessir voru nú dulítið dásamlegir…
…svo mikið af mjúkum og mildum pasteltónum…
…sýndi fádæma staðfestu og skyldi þessa eftir í hillunni sinni – með útsölumiðann og allt…
…fallegt!
…og þessir dúskar á þessum teppum voru eitthvað að krúttast í mér…
…viðarpottarnir og plattarnir – bjútí…
…og öll þessi trébretti…
…marmarabrettin voru líka heillandi – en þau voru líka skraaaaambi þung – þannig að bæbæ…
…handklæði og allt inn á bað – ég hefði nú vel getað hugsað mér það…
…var einmitt ótrúlega mikið til af flottum handklæðum…
…langaði svo í bland af poka af hinum og þessum týpum, svona til þess að hressa upp á…
…en neinei – var alveg leiðinlega skynsöm þarna…
…þessi var í baðdeildinni – fyrir óhreint tau – en mér fannst hann æðislegur í stelpuherbergif fyrir bangsa og meððí…
…ef þið smellið hér, þá getið þið skoðað úrvalið í H&M í Köben.
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum!
vááaah þesssi rúmföt !!! mig langar í þau sjálf 😀 😀
Bíddu…hvaða skynsemispóstur er þetta eiginlega??!! 😉 Skil það svo sem vel miðað við að þú áttir eftir að burðast með þetta allt yfir hafið…mikið ofboðslega er nú samt margt fallegt til í henni veröld….
Æði …… þoli ekki þessi kg …. viðmið sem eru svoooooooooooooooo út úr kú 🙂 en það er spurning að borga fyrir auka tösku i svona GOURMET FERÐUM 🙂
takk fyrir augn konfektið Soffía mín 😉
KKv.
mikið var þetta skemmtilegt innlit í HM home 🙂 takk