…því á föstudaginn er hún dóttir mín að verða 5 ára! Spenningurinn er í algeru hámarki og undirbúningurinn er mikill. Það dugar ekkert minna en 3-föld veisla þegar svona stórviðburðir eru. Fyrsta leikskólaafmælið framundan (eða 4 bestu vinkonurnar) á föstudag, famelían á laugardag og síðan Buslaravinirnir í næstu viku (vonandi)!
Ég veit ekki hvort að þið sjáið eitthvað bleikt þema í gangi hérna, hmmmmm?
Persónulega hefði ég ekki valið hana Barbie blessaða en ég er víst ekki sú sem ákveð – bara sú sem fæ að skreyta og reyna að gera gott úr því sem valið er 🙂
Litlar kórónur handa leikskólavinkonunum, voða sætar og fylgja með þeim blikkandi hálsfestar – kostuðu bara 250kr í Hagkaup!
En spennadi…trúi því ekki að gríslingarnir okkar séu að verða 5 ára…. 🙂
Til hamingju með litluna
Þetta verður greinilega litríkt og flott afmæli 🙂
Kv Sigga D
Til hamingju með stelpuna!
Kv.Hjördís