… og hve ég sakna þín gamli vin! Það er komið rúmt ár síðan við sáumst seinast og ég fæ sting í hvert sinn og ég sé poka frá þér. Svo ertu kominn núna með heimilisdeild sem að ég hef aldrei komist í!
Vonast til að við hittumst sem fyrst og þangað til, þá ylja ég mér í gegnum tölvuskjáinn við myndir af dásemdunum þínum…….og henti í sjoppingbag á netinu, ókeypis en hrikalega mikil píning 😉
p.s. held að ég sé með einhversskonar púðamaníu þessa dagana!
Ég einmitt tel dagana þangað til ég kemst í HM;)
Það verður spennandi að skoða heimilisdeildina.
Kv.Hjördís
Mig er einmitt búið að dreyma um svona flauels hringlótta púða lengi.. en fann núna um daginn hringlótta gamaldagspúða í Rúmfó á engann pening sem var nú í lagi;) og þeir eru bara nokkuð sætir, en þessir eru geggjaðir 😉
Kv,sjöfn
Jáááá ég kemst í H&M í ágúst,er einmitt búin að vera að dásama þessa púða á myndunum!
Kv Sigga D
Ætlaði einmitt að benda á að þessir hringlóttu eru til í rúmfatalagernum í þremur litum (ekki gulum því miður) en sé að búið er að benda á það.
Góða helgi 🙂
kv stína