elskurnar mínar allar!
Takk fyrir að nenna að lesa og kommenta, það gerir þetta svo mikið skemmtilegra að vita að einhver er þarna úti og fylgist með og hefur gaman af.
*Knús*
Vona að þið hafið notið páskanna í botn!
Krúttin mín með góssið sitt, og þess má geta að litli kallinn fékk náttúrulega alls ekki að smakka á sínum eggjun 🙂
Gleðilega páska, takk fyrir alla pistlana þína, skemmtilegu og fallegu hugmyndirnar þínar 🙂
Kveðja Guðrún H.
Gleðilega páska sömuleiðis!
Ofsalega skemmtileg þessi páskaskreyting hjá þér, ekki hefði mér dottið í hug að nota þrílyfta kökubakkann minn á þennan hátt 🙂
kv.
Ragnhildur
Gleðilega páska og takk fyrir skemmtilegt og fræðandi blogg!
Kv.Hjördís
Afskaplega flott bloggsíða hjá þér! Ég er búin að skoða hana út í gegn í dag. Mér þótti sérstaklega gaman að sjá myndirnar frá afmælinu hennar Valdísar og myndirnar af litlu vinkonunum út leikskólanum 🙂
Kveðja,
Elísabet (ég er mamma hennar Önnu Maríu sem er vinkona hennar Valdísar úr leikskólanum)
Gleðilega páska og takk fyrir mjög skemmtilegt blogg. Kíki hérna inn á hverjum degi, er búin að fá fullt af æðislegum hugmyndum fyrir herbergi dóttur minnar af síðunni þinni 🙂
kveðja
Svala
Krúttin, er þetta Tiger ofurhetja sem Garðar er með? 😉
http://tilefni.is/gjafakorfur.html
Ekki kannski script en flott íslensk hönnun 🙂
Takk fyrir skemmilegt blogg. Gefur manni fullt af góðum hugmyndum.
Kær kveðja,
Guðný
Gaman að heyra frá ykkur öllu, og jamm, þetta er Ofur-Tiger sem Garðar er með 🙂
Elísabet, ef þú sendir mér emailið þitt þá get ég sent þér myndirnar af lillunum í betri upplausn!
Svo fallegt allt.. börn, myndir og annað myndefni. Þú hefur ótrúlegt lag á svona. 🙂 Yndislega skemmtilegt að skoða bloggið þitt og myndirnar!