…og vúhúúú hver fílar ekki gott partý, svona korter í helgi?
Koddu í partý (allar upplýsingar hér!)
…að vísu verð ég að byrja á að syrgja það að rýmingarsala eigi sér stað núna í Púkó & Smart, því að það er svo sannarlega missir af þegar þessi dásemdarbúð hættir á Laugaveginum. En því enn meiri ástæða til þess að gera sér ferð þangað og næla sér í góss á 50% afslætti, og sumt er á 70% afslætti.
Nú og til þess að byrja á einhverju eggjandi, þá er sitt hvað fyrir páskaungana hérna á borðinu…
…til að mynda þessi pasteldýrð í öllu sínu veldi…
…og þessi, ég fékk mér nokkur svona hvít með franskri script með heim…
…ekki það að þessi silfruðu glimmer egg voru líka að heilla mig…
…en maður getur ekki glápt á eggin daglangt, eða jú reyndar!
En svo fannst mér líka geggjið þessi glös og skálar…
…og þessi kertaglös…
…og hvað er betra en eitthvað sem gerir allt betra?
…litlu tréhúsin þarna ögruðu mér líka og hótuðu að koma með heim 🙂
…þessi glös, dææææs…
…þessi ljós, í eldhús, jájájá…
…og eins og sést, þá er nú enn sitt hvað af dýrindisgóssi eftir og bíður þess að vera sótt…
…ofsalega fallir kertastjakar, og glös…
…krukkur og krúttlegt fyrir alls konar kruðerí…
…og jólin, elsku jólin, maður verður nú að birgja sig upp fyrir þau – þegar maður á svona “lítið” jóladót…
…ég fékk mér t.d. þessi kramarhús, átti nokkur fyrir, og finnst þau endalaust falleg og alls ekki bara jóla…
…kórónur á tréð – það vantar alveg…
…og bleikar kúlur og meððí – ójá…
…spruning hvort að maður standist freistinguna að bíta í svona bollakökur…
…en partý er ekki partý nema að fleirum sé boðið.
Púkó & Smart er ekkert að fljúga sóló svona seinustu metrana, heldur hafa nokkrar dásemdar netverslanir bæst í hópinn í tilefni af Hönnunarmars 2015.
Átta verslanir og hönnuðir leiða saman hesta sína í verslun Púkó&Smart Laugavegi 83:
Askja Boutique, Esja Dekor, Minimal decor, H&E design, Jónsdóttir & Co, Íslenzka Pappírsfélagið og Mjólkurbúið
…hér sést einmitt dýrðin frá Jónsdóttur &co…
…elska þessa krúttaralegu poka, með þessum krúttaralegu ungum og ofan í gómsætir súkkulaðibitar…
…og ef þetta er ekki gjöfin handa ömmu og afa sem eiga allt, þá veit ég ekki hvað er það…
…en miðað við að sem ég sá þarna í gær, þá mæli ég svo sannarlega með heimsókn…
…hver elskar ekki krukkuglös og bakarabönd…
…þetta er einmitt góssið frá Íslenzka Pappírsfélaginu…
…í alls konar fallegum litum…
…töff í svörtu og hvítu…
… og því lifandis skelfingar ósköp er gaman, að pakka góssi í svona poka…
….awww Stubburinn sæti, meira frá Jónsdóttir & Co
…alveg ótrúlega dúllulegt…
…og ég elska þig til tunglsins…
…og meira til….
…svo dásamlegar sængurgjafir…
…hér er síðan sitthvað frá Mjólkurbúinu…
…en þar fæst alveg heill hellingur af fegurð…
…þessir fannst mér svo sætir…
…og ekki voru diskasettin síðri…
…awwwwww…
…og dásamlegu púðarnir frá ByNord…
….og meira awwwww, músa og kanínuskór…
…stafaborðarnir sem eru að gera allt vitlaust, til í svörtu, gylltu og marglitu…
…og þessi risaljósakanína, sem eru útum allt á skandinavíu bloggunum, svo sæt…
… Esja Dekor er með sínar flottu vörur (sem við höfum líka skoðað hér)…
…endalaust af smartheitum…
…skemmtilegar nýjar línur í barnaherbergin…
…allt fyrir bakarameistarann, og bakaradrenginn…
…mig dreymir enn um Faunascape myndirnar, endalaust fallegar…
…og sængurverin…
…í það minnsta…
…þá vona ég að myndirnar komi því til skila að nóg er til af fínerí-inu…
…bæði frá P&S og öllum hinum…
…svo er líka eiginlega bara skylda að fara og kveðja þessa dásemdarbúð áður en hún lokar dyrum sínum á Laugaveginum í hinsta sinn…
….hversu fín er þessi hér t.d.?
…fjölskylduglösin, hönnuð af Dagnýju Kristjánsdóttur og Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur sem er einn af okkar þekktustu hönnuðum í dag. Hún hannaði m.a. krummaherðatrén og Ekki rúdolf snagana…
…og meiri hús, hver elskar ekki hús?
…ótrúlega flott skartgripatré og kertastjakar…
….gahhhhh – afsakið en maður fær nú bara verki í eggjastokkana að horfa á svona dúllerí…
…bara hætta á að maður krútti yfir sig…
…þessi er til og á afslætti, ef þið kaupið hana ekki – þá neyðist ég til þess!
Þarf ég að gera allt hérna??? (™Indriði)…
…í það minnsta – kíkiði við…
…njótið þess að skoða allt fínerí-ið…
…dáðst að fegurðinni…
…og bara njótið!
♥ ❤ ❥ ❣ Eigið yndislega helgi krúttin mín ♥ ❤ ❥ ❣
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum!
Úff…er að vona að Hellisheiðin loki um svona ca 2 leytið, þá verð ég veðurteppt í bænum og get dúllað mér þar, t.d. með því að kíkja í þessa(r) dásemdarbúð(ir)! 😉 Annars þarf ég að drífa mig austur í húsmæðraorlofið mitt!! Ætla að njóta helgarinnar með góðri vinkonu í bústað fyrir austan í brjáluðu roki og rigningu 🙂 Eins gott að byrgja sig upp af einhverju gúmmelaði og góðum bókum :p
Góða helgi mín kæra og takk fyrir frábæran póst!
þvilik synd að vera á Akureyri þegar svona góss er á útsölu 🙂
Svo sammála þér Halla :/ ….. en á móti kemur þá grennist veskið ekki á meðan 😀
Alger synd að þessi dásemdarbúð sé að hætta en maður sér það klárlega á þessum myndum að það er möst að kíkja við 😉
ÉG elska allt frá pappirsfélaginu og mjólkurbúðinni og svo voru tveir stjakar yndi… en eins og ég sagði við Höllu meðan við erum norðanlands og komust ekki … þá grennist veskið ekki á meðan 😀 það er smá kostur en eg er samt svolítið abbó að fá ekki berja þetta augum í alvörunni…..
………Er orðin buguð eftir allt búðarrápið með þér mín kæra, en hve þetta var dásamlegt, samt sem áður. Takk, takk fyrir skemmtilega stund og kostar ekki neitt….eigðu gott kvöld…;)