…er mál málanna í dag.
Ég varð nú bara að deila með ykkur myndum og hugmyndum úr þessari fallegu búð, um leið og ég segi ykkur frá því að þar verður SkreytumHús-kvöld núna næsta fimmtudag, með afslætti og fínerí. Sjúbbídú 🙂
En látum myndirnar tala og í lokin á póstinum þá set ég inn allar upplýsingar…
…fyrst og fremst, ohhh þessi kalkmálning – ég fæ bara ekki nóg af henni…
…allir þessir dásemdartónar og litir – manni langar bara í alla…
…bleikt og grátt – gahhhh…
…og svo er hægt að kaupa svona flotta stensla til þess að skreyta skápinn að innan, eins og sést hér fyrir ofan…
…síðan inn á milli er farið að laumast alls konar svona bjútídót…
…og þessir, sé þá alveg á kertastjökum, hangandi á glerkúplum eða bara á kertunum sjálfum…
…satt skal það vera…
…og meira af nýju og spennandi góssi…
…ég verð að segja að mér klæjar bara í dótaputtana á mér…
…þessir gæti verið snilld til þess að mála í réttum lit og setja t.d. á fánalengjur hjá fermingarbörnunum, eða bara hvar sem er…
…stórir og hægt að skreyta á alla vegu…
…eins og sýnt er…
…endalausar hugmyndir að skemmtilegu föndri á staðnum…
…þessir voru eitthvað svo dásamlega sætir…
…og meira smátt og sniðugt…
…hérna hefur stafur verið settur á kerti, fínt fyrir fermingarnar…
…nú eða bara servéttur…
…ég er að segja ykkur satt, það er svo auðvelt að fá verki í langarann…
…halló krútt…
…og fleiri krútt…
…talandi um fermingar og kerti, þá er nóg af hugmyndum í gangi…
…skemmtilegt að nota t.d. mynd af kirkjunni…
…nú eða setja Ritningargreinina sem að fermingarbarnið velur sér á…
..krúttaralegar litar styttur sem passa á terturnar…
…nóg er úrvalið…
…svo fallegt…
…þetta fannst mér líka yndis, að láta tóna svona saman kerti og gestabók, allt í stíl en samt ekki um of…
…(R)ugl sætar…
…næstum ofskammtur af fínerí í þessum pósti…
…og allt til þess að gera skemmtilegar og öðruvísi gjafir t.d….
…skál í boðinu…
…nú ef þið eruð að leita að pom poms og þeir eru uppseldir, eða ekki í réttum lit…
…þá er hægt að kaupa allt til þess að útbúa þá í Föndru, og ég held að það séu meira að segja námskeið…
…allur skrapppappírinn er á staðnum…
…og mynsturgatarar, sem eru svo sniðugir fyrir alls konar veislur…
…auðvitað hreindýr, þar sem þau eru heilsárs…
…og meira til…
…svo eru til höldur á skápa og kommóður…
…þessar fannst mér sérlega sætar…
…ef ég kynni að sauma, þá myndi ég sauma svona á gaurinn minn…
…og þessi efni voru svo dúlluleg að maður krúttaði nánast yfir sig…
…hér eru tölur…
…um tölur…
…frá tölum.
Geri bara svona frekar en að halda tölu um tölur sko…
…einhver var að spyrja um fjaðrir inni á SH-grúbbunni núna um daginn, þær fást hér…
…awwwwww – satt er það!
…sniðug hugmynd að fánalengju, önnur útfærsla en ég nefndi hér fyrir ofan…
…og allt til þess að gera svona gammel blúnduskraut inn á milli, dææææs…
Svo er það upplýsingarnar sem skipta máli:
Næsta fimmtudag verður SkreytumHús-kvöld í Föndru á Dalveginum.
5. mars kl. 18:00-20:00
Alls konar skemmtilegt fyrir föndrara, saumara, prjónara og auðvitað fyrir ferming-ara 😉
Ég verð á staðnum til skrafs og ráðagerða, og Föndra ætlar að bjóða upp á 20% afslátt þetta kvöld.
Hér er hægt að smella og skrá sig beint á kvöldið!
Hlakka til þess að sjá ykkur sem flestar! ❤
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum!
Úff, þvílík dásemd 🙂 Er að vinna í því að komast 😉 Held það eigi nú alveg eftir að ganga…úúúú, hlakka til!!