…eru víst liðin hjá og yndisleg voru þau að vanda!
Árla morguns á aðfangadag, þegar að við foreldranir lágum enn í bóli og hvíldum lúin bein, þá voru þessi systkin tvö frammi að horfa á barnaefni. Við hrukkum því harkalega við þegar æpt var: “maaaaaamma og paaaaaabbi, það eru jóóóóóólasveinar!”
Þá voru þessir kátu kallar að hóa hérna fyrir utan og komnir á eldhúsgluggann.
Þvílík og önnur eins upplifun og gleði.
Þeir óðu svo hingað inn, með hrópum og köllum og inn í eldhús og höguðu sér sko alveg eins og…..ja, jólasveinar…
…þessum hérna tveimur til ómældrar skemmtunnar og gleði…
…óðu að jólatrénu og hófu að raða pökkunum ofan í poka…
…og týndu jafnvel jólakúlurnar af líka…
…svo stilltu allir sér fallega upp við tréð – og eins og sést þá er gott að eiga stóra systur til þess að treysta á í svona aðstæðum…
…eftir að kallarnir kátu kvöddu. Þá var að kíkja í pakkana sem þeir skildu eftir – hvað sýnist ykkur, er sá stutti nokkuð spenntur??
…annars eru þessi tvö alveg dásamleg saman – svo miklir vinir alltaf!
…en undir trénu eru sem sé þeir pakkar sem að við erum að gefa öðrum og krökkunum. Pakkarnir frá oss…
…síðan lá leið okkur til tengdaforeldra minna, þar sem að stórfjölskyldan var öll saman. Ég meina sko, STÓR, því að við vorum 16 saman þarna 🙂
En fyrst þarf að smella af “skyldumyndum” fyrir framan tréð á aðfangadagskveldi…
…þessi tvo alveg hreint í besta spariskapinu, enda langþráð kvöld framundan. Ég fékk þennan dásemdarkjól á dömuna í Lindex, en strákafötin eru úr H&M, og hatturinn þar með talinn…
…og ein svona með mömmunni, bara að gamni…
…svona eru síðan dásamlegustu pakkarnir, þessir sem eru gerðir í skólunum og leikskólunum…
…svona fylgdust þessar með þegar var verið að opna pakkana…
…kátur lítill kall með pakka – loksins komið að þessu…
…yndislega stóra stelpan okkar, með fallega pakkann sem hún gerði í skólanum…
…ég er hlutdræg, en hann er nú ferlega dásamlegur ♥
…og þessi líka 🙂
Loksins með stóra pakkann frá mömmu og pabba…
…og litli maðurinn með sinn…
…síðan þegar heim var komið, og börnin komin í ból – þá var öllum gjöfunum þeirra stillt upp undir jólatrénu – þannig að jóladagur færi í það að leika sér með öll þessi nýju gull ♥
Annars vona ég bara að þið hafið átt dásemdar jól og notið þess að vera með þeim sem ykkur þykir vænst um ♥
Dásemdar myndir Soffía.Takk fyrir að deila þeim með okkur.
Ekki ónýtt að fá jólasveina á svæðið! Alltaf jafn kósý hjá ykkur 🙂
Kveðja,
Vilborg (kertaljosogkosyheit.blogspot.com)
Æðislegur póstur! Frábært hvað þið höfðuð það gott um jólin. Alltaf jafn yndislega falleg börnin ykkar (og þið gömlu eruð nú svo sem ekki sem verst heldur 😉 )
Jolaknús!!