…er hér komið – og þetta er aðeins léttara, meira módern og mjög svo dýr(ð)legt 🙂
…ég setti löber á mitt borðið, og hann er hvítur með silfruðum snjókornum. Diskarnir eru síðan hvítir og skálarnar með dásamlegum vetrarmyndum…
…á löberinum eru mikið til sömu skreytingar og voru á borði #1, að viðbættu smá tuju-greinum…
…glösin eru uppáhalds og mér fannst svo skemmtilegt að sjá stafajólasleikjóana svona hangandi á þeim…
…stjörnurnar eru líka fallegar sem skraut á diskunum…
…og ég blandaði saman tveimur mismunandi servéttum, gráum og myntulitum…
…því að það er enginn sem segir að allt þurfi að vera eins…
…dásemdarstjörnurnar eru á miðju borðinu, kjörnar í svona borðskreytingar, þar sem þær eru alveg glærar….
…og eins og sést þá er þetta bara frekar einfalt og látlaust…
…en samt bara fallegt…
…könglar og tuja gefa þessu líka hátíðlegan blæ…
…skálarnar eru í þremur mismunandi gerðum…
…kökudiskar á fótum er snilld til þess að hækka jólatrén, og annað slíkt skraut á borðum. Með því að setja blóm í könnuna kemur svona skemmtilegur “hversdagsblær” á borðið…
…og sem fyrr þjónar tarínan sem skál fyrir skreytingu…
…og þannig er þá borðið í heild sinni…
…stjakarnir gætu eins verið safn af silfurlituðum stjökum, eða bara hvítum…
…og það gæti þess vegna verið gaman að vera með nýtt skraut á hverjum disk sem að viðkomandi getur síðan bætt við á tréð þitt, skemmtileg leið til þess að eignast eitthvað nýtt á hverju ári 🙂
…síðan eru stjörnurnar bara lagðar á borðið þegar að máltíð hefst og “skreyta” þannig bara borðið sjálft…
Hvað er hvaðan:
Diskar: eldgamlir úr Rúmfó, keyptir sennilegast um 2003
Glös: Pokal úr Ikea, það sem mig langar til þess að þau verði útbúin aðeins stærri
Stjörnur: Rúmfó
Diskar með dýramyndum, Rúmfó í fyrra
Servéttur: Pier
Stjörnur úr gler: House Doctor, sú minni fékkst í Sirku
Kanna: Rúmfó
Kertastjakar: DIY, samansafn úr Góða Hirðinum
Eins og sést á upptalningunni þá er Rúmfó að koma mjög sterkt inn með alls konar fallega hluti í gegnum tíðina, og það sem er auðvitað best við það er að þeir eru alltaf á snilldarverði. Aftur er það líka bara málið að leika sér svoldið með það sem til er, skrautið á diskunum þarf ekki að vera glænýtt, flestir vita ekkert hvað þú átt þannig að það getur allt eins verið eitthvað sem hefur verið lengi til 🙂
Tvö borð eftir….
Líka glæsilegt 😀 Er að velta fyrir mér…ætli svona lítill dúkur sem er 1 x 1 meter sé ekki flottur á borð sem er 1,5 x 1,5 m? Er búin að gefast upp á því að finna dúk sem er nógu stór til að lafa niður af þessu borði. Þyrfti að vera 2 x 2…
Ég myndi halda það – hann yrði eins og “löber” svona á miðju borðinu!
Mjög flott 🙂 Nær því sem ég er að leita að en no.1
Hvaðan er löberinn?
H
Heyrðu hann er nokkurra ára gamall og fékkst í Ormsson sem var í Smáralind 🙂
Fallegt að vanda elska dýra skálarnar en hef ekki séð þær í Rl en vonandi koma þær aftur.
Þetta er æðislegt 🙂