…er póstur um allt og ekkert.
Bara pælingar fram og til baka og nokkrar myndir í bland…
…ég prufaði aftur tréstólana við borðið – og dæsti smá og dáðist smá að þeim, síðan þurfti ég að setja þá upp á háaloft til geymslu – búúúúú…
…í stofunni stendur þessi risaglerkúpull og ég setti rós í vasa undir hann. Nú líður mér eins og ævintýrið um Fríðu og dýrið eigi sér stað hérna innanhúss, er þetta ekki alveg eins og rósin þar?…
…en þetta er fallegt að sjá, og rósin stendur bara endalaust að því virðist…
…grey skápurinn minn er að verða heimilislaus í næstu viku, þar sem ég er búin að taka ákvörðun um að gera hann atvinnulausann í stofunni – vona ég…
…ég á sérlega erfitt með að aðskilja þennan spegil og arininn, þeir eiga eitthvað svo vel saman…
…en í stofunni er ég í miklum pælingum. Mig dreymir nefnilega um nýtt sófasett, en þangað til sá draumur rætist – þá ákvað ég að prufa að breyta gardínum…
…mér finnst þetta koma skemmtilega út – gardínurnar eru svona eins og gróft hör, þannig að þær koma vel út og svo eru þunnar hvítar innan undir…
…það að breyta gardínum getur breytt einu rými ótrúlega mikið, ekki satt?
Annars segi ég bara góði helgi elsku krúttin mín!
Reynið að gera eitthvað yndislega skemmtilegt, ég á bussí helgi framundan með Halógen-veislu famelíunni og loksins afmælisveisla litla mannsins – LOKSINS! 🙂
♥ Knúsar ♥
Rosalega falleg rósin í vasanum Fríð….nei ég meina Soffía 😉
Og já, gardínur breyta greinilega miklu, Þessar ljósu hörgardínur eru rosalega flottar!
Óska þér einnig góðrar helgar…það verður svooooo gaman í næstu viku þegar þessi helgi er búin…þá styttist í yndislega Ikea-kvöldið 😀
Hvar fékkstu brúna skemilinn eða veistu kannski hvar maður getur fengið svipaðann? 🙂
Mig minnir að hann hafi verið úr Tekk, keyptur um 2007.
Er ekki viss hvar svona fást í dag – því miður!
Góða helgi Soffía og njóttu helgarinnar með famelíunni 🙂
kv AS
Hlakka til að sjá breytingar á stofu Góða helgi