…og svo kemur Kofi þriðji, og þar fram eftir götum.
Það er nefnilega af nægu að taka, alls konar minni, og stærri DIY-verkefni sem verður gaman að sýna 🙂
…enda er af nógu að taka 🙂
…þessi gamli álkisubakka fannst í þeim Góða og hefur beðið í skúrnum eftir rétta staðnum, að sjálfsögðu fannst hann núna. Skálin er úr áli líka, og kemur frá RL-Design-inu góða, ásamt þessum dásamlega frildabursta…
…en þarna sjást nokkur gull sem koma frá Söstrene Greenes…
…eins og t.d. þessir dásemdar kassar!
Húsakassar í pastellitum og ég gat bara ekki staðist þá…
…hillueiningin undir skápnum er gömul og kemur frá le tengdós. Hún fékk smá málun og skúffur spreyjun (sko ekki tengdó, heldur hillan)…
…sömuleiðis kom litla sæta hillan á veggnum frá tengdaforeldrunum, og fékk sömuleiðis spreymeðferð (allt um svoleiðis í sér Kofi DIY-pósti)…
…gamalt fuglahús varð að “ljósakrónu” í litlu húsi sem ekkert rafmagn er í…
…og litlu gömlu yndislegu myndirnar fengu nýjan samastað. Ég á orðið nokkrar svona og mér finnast þær svo mikil dásemd. Þessar koma ýmist úr þeim Góða eða Háaloftinu á AEY…
…eins og sést þá bráðnauðsynlegt að setja svona litlar krúttaðar hillur á veggi í dúkkukofum…
…og svo, ef maður er heppinn, þá finnur maður svona krúttaralegt “bollastell” eða öllu heldur Expresso-bolla í Góða líka…
…litlir kofar í kofa…
…uglupúði úr Tiger (eeeeeldgamall og varla til lengur :/ ) fær að stija vaktina í kofanum…
…þessir kassar koma líka frá Söstrene og ég er búin að eiga þá í mörg ár.
Hins vegar tók ég þann efri og spreyjaði hann í réttum lit. Undir kössunum eru hinsvegar Bekvam-kryddhillurnar frá Ikea, standandi á hvolfi (þær eru tvær). Hins vegar fékk ég könnuna og skálarnar núna um daginn hjá systrunum Grænu og góðu. Kjörið að vera með könnu svo að hægt sé að fara með kalt vatn út í kofa, og svo er blá og bleik skál á fæti. Fyrir íspartý í kofanum…
…sjáið hvað uglan er kát með nýja húsið sitt…
…Love er það sem þetta snýst allt saman um. Holly Hobby eggin eru gömul….
…þetta var ódýr og einföld lausn. Hellurnar eru korkhitaplattar, bara spreyjað svart. Festi þær ekki einu sinni niður þannig að auðvelt sé að taka þær bara í burtu – ef þarf að breyta kofanum í t.d. búð…
…nóg á mamman af glerkrukkum í eldhúsinu, og því urðu þrjár litlar minikrukkur að fá að vera memm. Koma frá Söstrene. P.s. ekki dæma hvað það vantar mikið af kýtti undir gluggann, en túpan kláraðist og það var allt lokað – enda hvítasunnudagur…
…stundum er t.d. bráðsnjallt að klippa bara bangsa af lyklakippum, og þannig kom það til að þessi litli flutti inn…
…litli bjölluóróinn sem hangir þarna í er DIY eftir dótturina, það sýni ég síðar.
Sömuleiðis þarf ég að sýna ykkur nánar broddgaltahengið þarna á vegginum, sívinsælt…
…spegill var settur á veggin gegnt glugganum, svona til þess að grípa birtuna og stækka rýmið, sjónrænt séð…
…og litlu kollarnir frá Ikea voru snilldarlausnir við litla borðið, annað DIY-verk…
…svo er það þessi hérna!
Þegar að ég var á sama aldri og hún er nú kynntist ég stelpu sem átti eftir að verða ein af mínum bestu í gegnum lífið. Hún átti í garðinum sínum dúkkukofa. Sá kofi er í minningunni einn sá skemmtilegast leikstaður sem við áttum. Það sem meira er, ég man eftir að taka plötur og dót sem var í kringum kofann og stækka hann út um nokkur herbergi – getum við sagt saman: “snemma beygist krókurinn sem verða vill” og kannski bara líka “lengi býr að fyrstu gerð”.
Það var mér því mikilvægt að útbúa svona leiksvæði fyrir krakkana mína, sér í lagi þar sem að kofinn fylgdi húsinu þegar að við keyptum það…
…og þetta er að virka vel á mína konu! Sem og vinkonur hennar sem að virðast falla í stafi og taka strax til starfa í kofanum góða…
…enda þarf að matreiða ýmislegt…
…og það er svo sannarlega hægt að hafa gaman af (takið eftir dásemdar ausunni frá Söstrene, í hárrétta litinum)…
…og það er ekki annað hægt að sjá en að þær skemmti sér konunglega…
…jafnvel skotið á eins og einni pósu…
…og þannig er kofinn góði! og það sem í honum er, svona að mestu…
…hefur barasta tekist prýðilega að mínu viti…
…en sólin hélt áfram að skína og gleðja okkur, allan daginn í gær…
…þannig að það var áfram standandi sitjandi kaffiboð eftir að litli maðurinn kom heim úr leikskóla, og þá var sko afi dreginn líka (og amma sem ekki sést á mynd núna) í smá svona samsæti…
…og það var svo mikið sem þurfti að starfa og vinna, enda stórveisla með góðum gestum…
…og litli gaur var bara kátur með þetta allt saman – bæði að skenkja í bolla…
…og auðvitað að sópa líka – hann er svo duglegur að ganga til (hann blandar alltaf saman að ganga frá og taka til = ganga til)…
…fegurðin liggur í smáatriðunum líka…
…ég veit ekki hvað þessi dama hrærði í mikið af “pönnukökudeigi” í gær…
…og litli bróðir þarf að gera líka, og það er alveg hægt að gleyma Batman og Spiderman um stundarsakir og kofast smá…
“mamma, vilt þú pönnsur?”
…sér úti póstur kemur síðan: Kofi Úti, og þar koma þessir hlerar sterkir inn, enda varð ótrúleg breyting við að setja þá upp…
…enda hefur kofinn tekið stakkarskiptum að innan sem utan!
Hvernig líkar ykkur svo?
Sáttar?
Smella í eins og eitt Like? 🙂
Ég er ORÐLAUS !! þvílík fegurð hjá þér kona
Dásemd. Vantar kofa, svona kofa eða annan (oooo ég er svo fyndin!!!)
Gordjöss ! er það eina sem ég get sagt 😀
Yndislegur kofi hjá þér Dossa, mikið eru krakkarnir þínir heppnir að eiga svona klára mömmu 🙂 Þetta hús á eftir að vera þeim uppspretta mikillar gleði og margra minninga í framtíðinni 🙂
Geggjað.
þetta er nú alveg klikkað flott sko! <3
Snilld, þarf ekki fleiri orð um þennan frábæra gjörning 🙂
Held þú sért með töfrasprota 🙂 allt sem þú kemur nálægt verður dásamlegt! Til hamingju með kofann og elska svona hlera svo ég bíð spennt eftir næsta pósti.
ÆÐISGENGIN !! :Þ
Nú langar mér í kofa, Yndis 😉
Já sæll… þetta er geðveikt hjá þér þú ert dáseimdin ein 😉
Er orðaus!!!! – frábært – æðislegt – sjúkt – LOVE it !!! Hmmm ég var sem sagt ekki alveg orðlaus eftir allt saman 😉 Til hamingju með þennan frábæra gjörning. Knúz á línuna … Edda
Vá!! Bara snilld!! Rosalega flottur kofi 😀
Orðlaus !!!!!!!!!!!!! 5★ af 5mögulegum…..vill svo til að ég á kofa úti á palli sem er garðverfæraskúr því börnin mín eru svo gömul…..liggur við að mig langi að gera hann upp fyrir mig …..kannski sem bara slökunarherbergi 🙂
Vá vá,vá hvílík dásemd! Snillingur, punktur 🙂
Snillingur! þarf ekki að segja meir 🙂
OMG hvað þetta er geeeðveikt !
VÁ maður minn jeramías hvað þetta er yndislega fallegt hjá þér…..allt … ég er orðlaus!
Algjörlega geggjaður!
Vá, þessi kofi er algjör draumur. Ég er búin að vera á leiðinni að smella upp kofa í garðinum í nokkur ár, en nú bara verð ég friðlaus þangað til hann er kominn upp 😉
Vá , alveg geggjaður kofi hjá þér !!! Mikið öfunda ég börnin þín mikið !!! Þarna geta orðið til hreint frábærir leikir. En eins og þín er von og vísa er kofinn eða glæsihúsið frekar hreint út sagt glæsilegt. Til hamingju með þetta þið þrjú ! Bestu kveðjur Inga
Vá, þetta er æðislegt, ég er eimitt með kofa sem ég ætla að taka í gegn núna næstu daga. Hvar fékkstu stykkið sem þú setur úti við gluggan ? svona gluggahjarir eða hvað þetta nú heitir : )
Hlerarnir eru úr Góða Hirðinum 🙂
Auðvita 😉
Þetta er langfallegasti kofi sem ég hef séð! Börnin ykkar eru ekki lítið heppin að geta leikið sér þarna. Algjörlega fullkomið hjá þér!! 😉
Vá en fallegt hjá þér eins og allt annað sem þú gerir, þú ert snillingur 😉
yndislega fallegt go kósý 🙂
VÁ! I´m in love 🙂
Orðlaus!! Þú ert mögnuð kona 😀
Og ég sem hélt það væri bara hægt að hafa svona DRAUMAHÚS í útlöndunum,þetta er geggjað.
Vávává!
Vá, þetta finnst mér algjört æði, hefur alltaf dreymt um svona kofa fyrir mína dömu. Yndislegt.
Allt svo agalega sætt og krúttlegt, til lukku með híbýlið himneskt flotta!
KNÚS!
Kikka
Þetta er sjúklega fallegt hjá þér
Eitt orð DÁSEMD 🙂
Kkv.
Hulda