…reyndar þýðir það að þið sem fylgið mér á skreytum_hus á Instagram (sjá hér) hafið séð myndirnar en þið hafið þolinmæði með mér…
…þarna detta inn myndir af hlutum áður en þær birtast í póstum…
…það kemur með mér í verslunarferðir. Eins og hér í Litlu Garðbúðinni…
…og þessu hérna, líka úr Litlu Garðbúðinni…
…og hér er sumarið komið í Rúmfó…
…búin í sminki upp í Miklagarði…
…dóttirin búin að sauma perluuglu…
…með litla gaurnum mínum…
…þessir tveir, alltaf tilbúnir að sníkja – en þvílíkt sætir…
…yndisleg páskaegg í Söstrene…
…bara einum of sætt sko…
…svo fallegir skuggar af Ikea-luktinni góðu…
…sá þennan brúsa í Góða – hefði betur keypt hann því ég er enn að hugsa um hann…
…ennþá uppáhalds…
…rakst á gamalt Hús og Hýbíli síðan um jólin 2002, og þar var þetta innlit í gömlu í búðinni okkar…
…þarna er hann gamli minn, bara ungur og sprækur…
…inni hjá dömunni…
…uppáhalds geymsluboxin, flest úr Söstrene en þetta með laufunum úr Ilva…
…í Húsi Fiðrildanna…
…litli kall í smá leik inni hjá sér…
…Spiderman í smá leik, assgoti liðugur…
….litli kall í alvöru leik inni hjá sér – reyndar tók hann síðan til í hvelli, en samt…
…Tjörnin í Rvk á laugardagskvöldið…
…og á leið heim á nesið góða…
…litli gaur er mjög hlynntur símamyndatöku…
…þessi er orðin svo stór, hvert í ósköpunum fer tíminn eiginlega?
…krúttin mín í aftursætinu – mesta furða að maður horfir út um framrúðuna – með þetta útsýni aftaní…
…í fermingarveislu – Instafamily…
…fermingarinnpökkun…
…og dásemdar armbönd frá Lukkukúlur Lillu (sjá hér)…
…ég held að ég sé að elska þennan svoldið, spilun eða bilun?
…gott horn!
…húsbandið horfir á tv og borðar popp, en aðdáendaklúbburinn glápir bara á poppið…
…”mamma, taktu mynd”…
…og í lokin – ein uppáhalds!
Yndislegar myndir. Takk enn og aftur fyrir að deila hluta af lífinu þínu með okkur 🙂
Skemmtilegar myndir en alveg æðisleg þessi síðasta!!
Flottar myndir hjá þér 🙂 Kannast við svona hundaaðdáendaklúbb 😉
Æðislegar myndir – takk enn og aftur fyrir mig, það er svo gaman að fylgjast með því sem þú ert að brasa 🙂
Frábærar myndir!
Má ég forvitnast hvernig ljós þú setur ofan í Hellu vasann svo það komi svona vel út? 🙂
Takk fyrir Íris! Þetta er bara einföld lítil 20 ljósa jólasería.
Auðveldar lausnir eru oftast bestar! 🙂
Frábært! Takk fyrir þetta 🙂 hendi einni svoleiðis ofan í