…að herbergi elsku stelpunnar okkar!
Hún er víst að verða 8 ára núna í næsta mánuði og því ákváðum við að hendast í smá breytingar. Ég ætla að fá að taka betri myndir í dagsbirtu, klára að setja upp gardínur sem ég þarf að kaupa og svo koma alls konar detail-ar. ef þið hafið hug á?
En þangað til – þetta…
…og þetta. Ég verð að segja að þessi rammagrúbba er ein af mínum uppáhalds 🙂
…skápurinn góði sem henti öllum breytingunum af stað (fínt að kenna mállausum skápum um 😉 )…
…sumt breytist ekki mikið, en þó!
…við gerum það svo sannarlega ♥
…þessi varð nú ansi hreint fallegur, þó ég segi sjálf frá…
…önnur rammagrúbba sem tókst bara vel líka…
…annað sjónarhorn…
…ohhhh, þessir litir, þessi fegurð 🙂
Hvað finnst ykkur?
Langar ykkur að sjá meira?
Í dag?
Eða bara á mánudag?
Síðan kemur all svakalegur póstur með öllum smáatriðum. Keypti nefnilega nokkra hluti sem eru snilld upp á skipulagið að gera, og hver vill ekki meira skipulag í barnaherberginu?
♥ knúsar ♥
Bíð spennt eftir skipulaginu ….vantar slíkt….. Allt flottar breytingar…ekki eins stelpulegt en jú smá 🙂
Kv AS
VÁ þetta er fallegt allan hringinn 🙂 Væri gaman að heyra díteilana í dag
Ekkert smá fallegt 🙂
váaaaa ég er orðlaus, rosalega er það fallegt. Og grúppurnar eru dásamlegar… hlakka til að sjá meira meira meira 🙂
Þetta er geggjað! Meira í dag 🙂
Hversu fagurt? Hrein dásemd!
Er að fara að taka barnaherbergið hjá mínum krílum (fara saman í herbergi) í gegn um helgina svo þú mátt endilega koma með meira sem fyrst 😉
Herbergið verður eflaust samsull af öllum hugmyndum sem þú hefur plantað inn hjá mér í gegnum tíðina 😉
Svo ótrúlega fallegt eins og alltaf 🙂 mig langar að sjá meira í dag 🙂
VAAAAAAÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!! Ég er barasta orðlaus! Ekkert smá flott! Hefur breyst úr krúttlegu barnaherbergi í “égverðunglingureftirmaxfimmár” herbergi! Æðislegt!! Ramminn með stöfunum hennar í er mitt uppáhald, listinn á herbergisveggnum gerir svo mikið fyrir herbergið (man ekki hvort hann var þar áður en ég tek a.m.k. eftir honum núna 😉 ) og margfaldi ramminn með “Við elskum þig til tunglsins og til baka” finnst mér æði líka! Hlakka til að sjá meira 🙂
Akkúrat þetta sem ég meinti 🙂 herbergið er ekki eins barnalegt og það var enda stelpan að stækka…. 🙂
Vá ædislegt!
Æðislegt! Bíð spennt eftir að sjá meira, er einmitt líka að fara að gera stelpuherbergi svo ekki er slæmt að fá hugmyndir 🙂
Bara dásamlegt, og fallegt að hafa þennan lista á veggnum og skipta þannig litnum á veggjunum <3
Yndislegt! Ég bíð spennt eftir að sjá meira, finnst alveg dáldið langt þangað til það kemur mánudagur…. 😉 😉
Rosalega fallegt hernergi.
Hvar fékkstu hringlótta rammann utan um stafina og gardínurnar? Og á hverju hangir himnasængin (vantar hugmyndir 🙂
Kveðja Guðrún
Æðislegt, þú ert snillingur 🙂
GORDJÖSS!!!
vá hvað herbergið er fallegt…og var það nú fallegt fyrir….skil ekki hvernig þú ferð að þessu!!??
Listarnir á veggjunum…eru þetta trélistar? Gera helling og sniðugt að hafa hvíta litinn fyrir neðan, yfirleitt er hann fyrir ofan.
Alger snilld og mig langar að sjá restina í dag. ;o)
Sæl
Mig langar svo að vita hvort þú látir gardínurnar ná alveg niðrí gólf eða hvort þú styttir þær? 🙂
Kv. Margrét.
Vá… rosalega flott 😉
alveg geggjað
meira…. í dag 🙂
Vá, þetta er ótrúlega fallegt hjá ykkur, hlakka til að sjá meira!
Ofsalega fallegar breytingar ! Hlakka til að sjá meira 🙂
svo rómantískt og fallegt
Einstaklega fallegt herbergi sem heimasætan fær. Mér finnst myndin vinstra megin í efstu myndagrúppunni æði.
Þú ert snillingur!
Vá Vá þetta er yndislega fallegt hjá þér og ég get ekki beðið eftir að sjá meira…vona að það komi meira í dag 😀 😀
Er ekki dugleg að commenta hér en skoða síðuna þína næstum á hverjum degi, en nú ætla ég að vera duglegri að gera like/comment því þessi síða þín er svo yyyyndisleg 😀
Mjög fallegt, hlakka til að sja meira 🙂
Váááá… þetta er herbergi er of flott. Er svo að fara að nota barnaherbergin þín sem inspó 🙂
Sæl, ég hef afskaplega gaman af því að fylgjast með því sem þú ert að gera og ég verð að segja að mér finnst nýja lúkkið á stelpuherberginu súper smekklegt. Nú langar mig að spyrja þig að einu, ég er nefnilega svolítið svag fyrir gráum lit á herbergi dóttur minnar sem einnig er 8 ára. Hvernig fílar stelpan þín gráa litinn? Ég er ekki alveg viss um að ég næði að selja minni þessa hugmynd (hún er enn svo litrík) en mig langar svakalega að prófa 🙂
Hæhæ og takk fyrir 🙂
Daman er bara mjög ánægð með þetta! Var ekki viss um að hún yrði sátt við gráan, en þegar ég sagði henni grátt að ofan og hvítt að neðan, og svo kæmu allir hinir litirnir með þá varð hún bara mjög kát. Hefur ekki heyrst nein kvörtun frá henni!
Kær kveðja
Soffia