…best að standa við gefin orð og deila með ykkur gullunum sem komu með heim úr Litlu Garðbúðinni!
…ég get svo svarið það að eldhúsið mitt hefur farið hamförum núna undanfarnar vikur. Alls konar breytingar og skreytingar hafa orðið, viljandi, óviljandi, alveg óvart og mjög planað 🙂
…þetta dásemdar hreindýr fékk að sjálfsögðu að koma með heim, því að það var bara nokkrum númerum of krúttað…
…og þessir sveppir. Í alvöru, eigum við að ræða þessa sveppi – það er svona fínlegt glimmer yfir þeim…
…fjaðratrén eru gömul, úr Rúmfó og sennilegast að verða 7 eða 8 ára…
…svo var það hann Krúttmundur, sem er bara alveg obbalega zædur, svo mikill mússí mússí krútt…
…lítill sveppur, og svo er tréstjarnan úr Pier…
…hjartað er líka æðislegt, og þetta er minni gerðin…
…en ég er nokk viss um að þessir sveppir eru ekki að fara beint í kassann eftir jólin sko, þeir fá eitthvað að kúra áfram, jamm jamm…
…þetta hreindýr var líka til standandi, en mikið finnst mér þessi falleg og svo eitthvað mikið “örruvísi” en önnur sem maður sér…
…bjútífúl prófíll ekki satt?
…og svona var þetta þá, og varla séns fyrir mig að standast þetta. Ég meina, hreindýr, sveppir, hjörtu með script á, og moldvarpa, auðvitað meina ég broddgölturinn ;). Ég átti bara engann séns!!!!
…I luv it…
…síðan er Baggalútur að syngja inn jólin fyrir mig, smá piparkökur og malt og app = jólagleði…
…yndið hún Brynja, Deco Chic, færði mér þessar stjörnur og uglukerti, alger dásemd!
…þið sjáið bara hvað þau eru falleg…
…og ommmnommmnommnomm…
…svo gott…
…og svo fallegt, sem betur fer er ekki allt skrautið mitt ætt, því að ég stenst þetta ekki 🙂
…og til þess að ég fengi örugglega allt til jóla, þá fékk ég líka Hátíðarilminn í Litlu Garðbúðinni, sko – ein með öllu 🙂
…svo á morgun!
Yndislegt, alveg ……Broddi er alveg að gera það fyrir mig, ekkert smá sætur 🙂
Bjartar jólakveðjur
Ótrúlega krúttaralegt allt saman en reyndar held ég að “moldvarpan” sé í raun broddgöltur en ekkert síður krúttlegur fyrir vikið.
Haha….þetta var smá svona heilafret 😉
Geggjað!! Allt svo flott og skil vel að þú hafir ekki staðist litla, zæta, múzzí broddgöltinn…hann brosir meira að segja svo fallega til þín 🙂 Þarf svoooo að komast í þessa búð…
Dásamlegt hjá þér elska
æðislegt hjá þér elskan … eins og venjulega 🙂
🙂 hehehe mér dettur bara í hug að spyrja þig Soffía min, hvað áttu núna mööööörg hreindýr, sem eru auðvitað öll bjútifúl 😉
Og hann Krúttmundur er algjört æði með öllu hinu góssinu 🙂
Kv AS
Æðislegt,ég er búin að panta mér allskonar eins úr Litlu garðbúðinni.Svo næs að senda þeim bara póst og biðja um eins og Dossa keypti sér 🙂
Snilld!
Það hljómar mjög skemmtilega 🙂
Broddgölturinn minnir mig nú bara á skemmtilega orðið sem kom frá henni Gunni… manstu… 😉 Byrjar á K…!
Haha…awwwww litla sæta xxxxx 🙂
Good times!
hvar færðu allar þessar krukkur og standa á seinustu myndinni :)?
Þær koma héðan og þaðan. Sumar krukkur eru frá Aff.is, aðrar frá Húsasmiðjunni, minnsta frá Góða hirðinum. Kökustandarnir eru mikið heimalagaðir: http://www.skreytumhus.is/?s=k%C3%B6kudiskur