…og svo að lokum smá jólasokkur, svona til að setja punktinn yfir i-ið…
Að skreyta er svo oft bara um að setja upp ákveðna stemmingu,
kalla fram ákveðna tilfinningu, eitthvað fallegt fyrir augað til að njóta og til að gleða hjartað ♥
…td leyfði ég stærsta hreindýrinu úr Pier, að gera sér dvalarstað inni í arininum…
…og þrátt fyrir að dagsljósins njóti við, þá má alltaf njóta þess að hafa kveikt á seríum. Hver segir að það sé ekki hægt að hafa gaman af því að það birti varla af degi…
…mér fannst líka skemmtilegt að taka lurkana aðeins út úr arninum, og draga þá út á hilluna fyrir framan…
…ég fann líka þessa dásemdar grenilengju, sem er með smá snjó á og örlitlum könglum, hér og þar…
…hreindýraþemað er alls ráðandi…
…ég er líka mjög hrifin af því hvernig lengjan lafir niður af hillunni…
…það myndast svo skemmtileg stemming við það…
…smá skinn fær að fylgja með, og það skemmtilega er að þetta skinn hef ég átt síðan ég var í Barbie-leik í gamla daga…
…en mér fannst eitthvað vanta, hvað svo sem það væri 🙂
…ég meina, það eru könglar…
…hreindýr…
…köngar og hreindýr…
…lengjur með könglum…
…og ljós…
….heyrðu jú, það er líka könglar…
…en svo fattaði ég það!
…ég meina þið sjáið það strax!
…stundum borgar það sig greinilega að kaupa jólasokkahaldara í Gutez Hirdoz í maí 😉
(sjá hér)…
…og ekki er hægt að láta þá hanga svona tóma og leiðinlega þannig að ég fór inn á síðuna hennar Öddu, sem er með bloggið Heima, en á Facebook er hún með Festar og fallegt skart (smella hér)…
…pantaði mér yndislega, fínlega og fallega bambajólasokkinn sem að ég sá hjá henni í fyrra. Skemmst er frá því að segja að ég pantaði sokkinn kl 17 og kl 21:30 var bankað á dyr og sokkurinn afhentur. Frekar fín heimsendingarþjónustan frá Akureyrisinni ♥
…og er hann ekki bara nokkurn veginn dásamlega fallegur þarna?
Jemundur minn, það held ég nú…
…klúðrið var bara að panta bara einn sokk, þarf að leiðrétta það í snarhasti því eins og allir vita þá koma sokkar í pörum og bara vitleysa að panta bara einn…
…músssí mússí mússí…
…og þannig er það, sokkur á einari og vantar vin hans, en annars bara arinn, svona næstum alveg jóla!
…hreindýrin eru öll úr Pier.
Bakkastjörnurnar úr Blómaval.
Sokkurinn frá henni Öddu, Festar og fallegt skart.
Spegill og sokkahaldarar, Daz Gutez.
Svo kósý og fallegt!
Kv.Hjördís
Geggjað 🙂
Vá hvað þetta er fallegt hjá þér
Frussssh nú þarf ég að fara taka mig saman í andlitinu og fara taka til og ger svooona fííínt hjá mér !
Takk fyrir sparkið soffíá Dossa 🙂
Vá…ekkert smá flott!! 🙂
Sæl og takk fyrir flotta síðu og fallegar myndir. Svo sannarlega gaman að skoða og fá hugmyndir og “stela” hugmyndum. Veistu hvar ég fæ “jólasokka-haldara” hérlendis ? Með bestu kveðjum Inga
Sæl Inga og takk fyrir hrósið,
Ég veit að það fást sætir jólasokkahaldarar í Spennandi, sérð hlekk til hliðar á hér á síðunni minni!
Kær kveðja
Soffia
Dásmlegt að sjá svona kósýheit fyrir kl 09 á morgnana,langar bara að kveikja á kertum og kalla karlinn inn aftur vinnu og jólast og hnoðast 🙂
Mjög falleg arinhillan…….
Já þessi jólehestafetish er rosaleg og bráðsmitandi 🙂
Held ég sé rugluð, ég labbaði framhjá svona sokkahaldara í pottery barn í síðustu viku og hugsaði með mér að maður þyrfi ekki svona því að ég ætti engan sokk!! gæti lamið hausnum fast utan í vegg núna!
Dásamlegt hjá þér eins og alltaf.
Takk Dossa mín fyrir mig;)
Dásamlega fallegt og kósý allt sem þú tekur þér fyrir hendur 🙂 en eitt sem mig langar að spyrja, því ég á ekki árin 🙂 hvar fær maður svona heila arindruma eins og þessa ? Finnst ég alltaf bara sjá þá skorna niður í helming eða í fernt en mig langar einmitt ií svona heila fyrir kerti og glervasa og svona 🙂
Sæl er hægt að kaupa svona arinn hjá þér eða veistu hvar hægt er að fá svipaðan eða eins og þennan. Kveðja Jóna