…eða það segja þeir! Þannig að við erum enn að hangsa í eldhúsinu mínu, sorry guys.
…ég tók bakkann minn góða og hækkaði hann um eina hæð, mín er alltaf á uppleið. Síðan eins og sést, eru litlir sveppir og hreindýr farin að lauma sér inn í dekorinn…
…þessi hreindýr eru náttúrulega alltaf jafn falleg og mér finnst ekkert leiðinlegt að stilla þeim upp 😉
…svo eins og þið sjáið þá er enn smá bling framan á bakkanum, litlir svona límdemantar…
…sveppirnir finnst mér vera einstaklega fallegir með smá svona upphleyptum hatti…
…og svona er eldhúsið þegar að séð er yfir eyjuna…
Ég sýndi ykkur hurðina okkar Pauls á miðvikudag, en það er skemmst frá því að segja að þetta var tilraun 2. Ég var alltaf ákveðin í dýramyndnum, en mér fannst eins og blekið væri að klárast í prentaranum, þannig að ég prentaði út tvær stóru myndirnar og ákvað að prufa að setja bara litlar myndir úr svona scrapppappírs-örk sem að ég átti (6″x6″). Best að leyfa ykkur að sjá það líka 🙂
…sem sé sömu myndirnar í miðjunni en svona “script”pappír í þeim efri og neðri…
…hérna sést betur hvernig hurðin er í nærmynd, svona eftir að ég fór yfir með sandpappír…
…script-pappírinn var mjög fallegur, en bara svo gulur miðað við útprentuðu myndirnar, en það þýðir líka bara að það verður gaman að leika sér að því að skipta um myndir í þessu eftir árstíma…
…það sést best hérna held ég – hversu gulur skrapppappírinn var miðað við miðjuna…
…glerkrukkurnar mínar góðu standa alltaf fyrir sínu, en þær voru keyptar í Blómavali 2009 – hef ekki séð þær þar síðan, því miður…
…svo er náttúrulega stóra hurðin mín, þarna við vegginn (sjá hér) og það er spurning hvort að eitthvað fái að prýða þær rúður þegar fram líða stundir…
…spegillinn sem þið sjáið á veggnum er reyndar úr hinni stóru fínu design búð, Lez Gutoz de Hirdoz, og hann var svona gulur furuspegill, sem af einhverjum undurfurðulegum ástæðu finn ég ekki mynd af honum áður…
…ég málaði hann fyrst gráan, og fór síðan yfir með hvítri kalkmálningu, síðan var það gamli góði sandpappírinn…
…reyndar eins og þið sjáið þá klúðraði frúin aðeins málunum og pússaði spegilinn af svo miklum móð fyrir málningu að hann rispaðist, en svona er þetta – maður lifir og lærir…
…stjakarnir eru bara samansafn héðan og þaðan…
…áfram er ég með snæri undir glerkúplum, það er greinilega eitthvað þema hjá mér…
…undir borðinu standa þessar tvær síðan, og geyma venjulega kerti…
…og þannig er það þá. Krukkurnar eru á eyjunni sem er þægilegt þegar krílin eru að fá morgunmatinn sinn, og svo líka af þær eru svona glærar og gegnsæjar. Spegillinn og hurðin hans Paul eiga ágætlega saman og fá í það minnsta í bili að vera bestu vinir…
…og þegar horft er yfir allt eldhúsið, þá finnst mér hlerarnir í glugganum tengjast hurðinni á borðinu og þannig fá smá heildarsvip, en það er bara ég 🙂
…þá hætti ég að pína ykkur í eldhúsinu, og er að spá í að fara að vetrarskreyta smá í næstu viku, þið vitið – ekki alveg jól, en samt svona í vetrarfjölskyldunni, mjög náskylt jólafamelíunni – hvað segið þið um það?
…eruð þið ekki algerlega sammála mér um að ég hafi gert rétt í að skipta og hafa prentaðar myndir allsstaðar?
…í það minnsta er ég sátt! Ég vil líka nota tækifærið til þess að þakka ykkur fyrir frábærlega skemmtilega viku, svo gaman að fá svona mikið “feedback” frá ykkur, það gerir þetta svo mikið skemmtilegra og hvetur mig svo sannarlega til dáða!
Takk fyrir að lesa, velkomnir nýjir lesendur (allskonar endur velkomnar) og eigið yndislega helgi og njótið þess að vera til ♥
♥ knúzar ♥
Flott hjá þér! Einmitt lauma inn vetrar þema og síðan smá jó.. án þess að sjokkera okkar viðkvæmu sálir og nægilega tímanlega til að við náum að vera í stílnum tímanlega 😉 Þú ert alveg með þetta í þér! Enn og aftur takk kærlega 🙂
Kv. Hanna
ljósritunarpappírinn er alveg málið… er honestly frá og með núna að leita mér að hurð í copy paste verkefni 😉 😉
Góða helgi snillingur!
Sammála að prentuðu myndirnar koma betur út en scrap-pappírinn! Alltaf jafn skemmtilegt að lesa bloggið þitt…hlakka til að sjá jó…nei, ég meina vetrarskreytingarnar hjá þér! Og svo auðvitað jólaskreytingarnar líka 🙂
Þetta er algjör snilld með þessar hurðir. Og hlerarnir líka!
Sé fyrir mér að öll hús fyllist af gömlum skápahurðum með myndum bak við glerið. 🙂
Ohhhh…unaðslega fallegt hjá þér eins og alltaf
en hvar færðu þennan 3ja hæða bakka ?
Er bara dáleidd, allt sem þú gerir er bara dásemd… hlakka til að sjá vetrarskreytingar hjá þér ! 😀 knús í kot
Algjörlega sammála að prentuðu myndirnar eru málið og já TAKK fyrir að setja þær inn á síðuna, ég googlaði og googlaði og fann ekkert í líkingu við þessar gordjöss myndir og var endalaust glöð þegar ég sá að þú settir þær inn!
Hlakka til að sjá vetrarskreytingarnar, verð að viðurkenna að ég kann bara haust og svo jól þannig að ég bíð mjög spennt!
Mega flott 🙂 er komin á breytingaskeiðið lika…þeas breyta heimilinu aðeins…..kíkki til þín og se hvað þú ert búín að gera. Langar að gera svo margt kemst bara ekki yfir það með aðeins tvær hendur 🙁 en þetta kemur smátt og smátt …….
Bíð spennt eftir hvítu/jolaskreytingum 😉
Kv AS
Mikið er þetta allt fínt og skemmtilegt. Hurðin kemur betur út með eins pappír í öllum hurðum.
Mér finnst reyndar bakkinn fallegri þegar hann er tveggja hæða, mér finnst eins og það sé eitthvað svo þröngt á miðhæðinni.
En þetta er samt allt rosa flott hjá þér og það verður gaman að sjá vetrarskrautið.
Svona hurð er næsta verkefni hjá mér. Alveg á hreinu og já prentuðu myndirnar eru málið. Búin að fara inn á síðuna sem þú bentir á með vetrarmyndunum og VÁ..vá… Vááááá
Hæ hæ emh úr hverju eru hreindýrin þín sem þú ert með í bakkanum…þessi hvítu? Það eru mjög svipuð í pier nuna nema hvað svört og svo létt ….meina finnst þau ekki nógu efnismikil fyrir minn smekk 🙂 en það er kannski bara della í mér hehehe
Anna Sigga, þetta eru House Doctor hreindýrin. Fást víða fyrir jólin, t.d. í Tekk og Púkó&Smart. Ég á líka þessi eins og fást í Pier og þau eru líka mjög falleg ( http://www.skreytumhus.is/?p=2524 )
Hæ hæ,
smá forvitni hvað heitir þessi fallegi litur sem er á veggjunum hjá þér og hvar fékkstu hann 🙂
Elska síðuna þína 🙂
Sæl Guðrún 🙂
Liturinn er SkreytumHús-liturinn og fæst í Slippfélaginu.
Liturinn er grábrúnn, fer svoldið eftir því hvað er sett með honum og hvernig birtan er.
Takk fyrir hrósið!
Þetta er bara allt svo dásamleget hjá þér,get bara ekkert annað sagt !
Takk fyrir mig, hlakka til að sjá smá vetrarfíling hjá þér 😉
Mér finnst hreindýrin alveg æðisleg, fékkstu þau hvít eða málaðiru þau? Mér finnst svolítið fyndið hvað ég horfi öðruvísi augum á nytjamarkaði núna eftir að ég hef verið að fylgjast með þér. Áður fyrr sá ég ljótar styttur (illa farnar og ljótir litir) og bara gleymdi þeim en núna sé ég allskonar styttur og fer að ímynda mér hvernig væri flott að mála þær hvítar eða hvernig sem er.
Annars finnst mér eldhúsið þitt alveg rosalega fallegt 🙂
Hæ Svanhildur 🙂
Hreindýrin voru hvít, þau fengust í Tekk og á fleiri stöðum sem að selja House Doctor vörurnar. Svo finnst mér endalaust gaman að heyra að þú sjáir hluti öðruvísi núna, bara skemmtilegt!
Takk fyrir hrósið!
Þetta er ótrúlega fallegt hjá þér ! En hvar færðu 3 hæða bakkann ?