…er bloggáskorun sem kemur upprunalega frá Mona´s Picturseque en ég sá þetta hins vegar hjá henni Kristínu Vald. Ef þið eruð ekki búin að kíkja á síðuna hennar Kristínar þá mæli ég með að þið gerið það í snarhasti, þar sem að hún tekur alveg guðdómlega fallegar myndir af fallegu stúlkunum sínum og fallegu umhverfi, sem sé allt fallegt…
Málið snýst sem sé um að birta 7 uppáhaldsmyndirnar frá því í sumar, og það liggur við að þetta sé í fyrsta sinn sem ég segi, sem betur fer var veðrið ekkert gott – því annars hefði maður haft svo mikið mikið meira úrval úr af myndum úr ferðalögum 😉 Sko, fátt er svo með öllu illt að eigi boði nokkuð gott…
* Þessi mynd af strákunum okkar finnst mér vera sérlega indæl, reyndar bara tekin hérna inni og ekkert uppstillt eða spennandi umhverfi,
en þeir eru bara svo miklir vinir og mjúkir saman, að ég verð öll mjúk í hjartanu – og það er gott…
* Mynd frá San Francisco, tekin í höfninni á leiðinni að skoða Golden Gate brúnna, eitthvað alveg ótrúlega fallegt við hana finnst mér…
* New York, New York ❤
* Feðgar í fjöri og að vera fyndnir í fríi, hvað eru mörg f í því…
* Það er bara eitthvað við þessa mynd af henni dásamlegu dóttur minni sem heillar mig alveg,
held að það sé bara að myndin er eitthvað svo mikið hún…
* Enn og aftur, bestu vinir, mjúkt hjarta ❤
* Vinstra megin er það faðirinn 1976, en hægra megin litli gaur 2013 – en báðir í sömu peysunni og við sömu hurðina…
Mona Picturesque is challenging bloggers to pick seven pictures from the summer, these are mine!
Wonderful! So happy you took the challenge 🙂 your summer looks gorgeous. I’m most in love with the photo of your hubby & son (?) with the rainbow in the background. Pure gorgeousness!
Skemmtilegar og fallegar myndir!
Mona inspires us all! What a great challenge! Uppahaldsmyndin er af fedgunum i somu peysunni…Algjor snilld.
Kv. Brynja
Frábært ! skemmtilegar myndir og mjúkumyndirnar eiga sko heima þarna 🙂 🙂
Ég á margar uppáhaldsmyndir hihi frá því í sumar, allar af syni mínum *bráðni*
kv AS
Frábærar myndir en feðgar í fjöri er bara geggjuð 🙂
Æðislegar myndir, bráðnaði alveg yfir þeirri fyrstu,er líka labbaeigandi….feðgar í fríi geggjuð..og peysumyndin dásamleg…..þessar stóðu uppúr hjá mér..;)
yndislegar myndir