… ♥…
…nánar er hægt að lesa um málið með því að smella hér og síðan hér…
…tíminn flýgur áfram og það eru víst 8 ár síðan í dag…
…en þetta var yndislegur dagur…
…og þessi yndislegu kríli eru einmitt töluvert eldri í dag, en áttu afmæli í gær og í dag – þannig að til hamingju með daginn elskurnar mínar…
…útimyndir í rigningunni, en þó ekki jafn mikil rigning þetta sumar eins og í ár…
…mæli með að taka svona mynd af hringunum yfir vendinum, finnst það svo fallegt…
*alltaf ein af uppáhalds myndunum*
…séð yfir að kirkjunni á brúðkaupsdeginum…
…bóndinn í sætum sokkum á brúðardegi…
…tilkynntum um leynigestinn okkar í veislunni, mikil gleði…
….smooooch….
…kát með daginn…
…síðan vorum við með mini-útihátíð í bústaðnum daginn eftir, allt að gerast og umkringd fjölskyldu og vinum, yndislegt!
…og brúðarparið í góðu stuði og ánægt með allt saman…
…vöndurinn minn fallegi…
…voðalega erum við mikil babies þarna 🙂
Til hamingju með daginn 🙂
til hamingju með brúðkaupsafmælið!
Til lukku með 8 árin 🙂 finnst eins og þetta hafi bara verið í hittifyrra 😉 yndislegt í alla staði.
Innilega til hamingju með daginn ykkar 😉 Flottar myndir og flottur vöndur, gerðir þú hann sjálf ? Kv.Heiða
Heiða,
ég gerði ekki vöndinn sjálf. Við Beta (frá Blómavali í Grafaholti) gerðum díl og ég gerði hennar og hún minn. Maður er of taugatrekktur á seinustu metrunum til þess að sjá um þetta verk sjálfur 🙂
Fallegar myndir hjá þér og af ykkur 🙂 Einhver sérstök ástæða fyrir því að þið völduð Borgarfjörðinn og séra Brynjólf?? (afsakið forvitnina, en þegar maður býr í þessum fegursta firði landsins (að mínu mati, þótt þið hafið nú verið vitlausu megin Hvítár 😉 ) þá bara vaknar alveg heilmikil forvitni 😉
Já og til hamingju með daginn ykkar!
Takk fyrir Margrét 🙂
Ástæðan fyrir að Borgarfjörðurinn fagri varð fyrir valinu var sú að maðurinn minn er ættaður þaðan. Ammma hans og afi voru seinustu ábúendur að Litla Skarði, og við vorum einmitt í bústaðnum þar í viku á eftir brúðkaupið.
Stafholtskirkjan er líka sérstök, því afi hans og amma, eru jarðsett í kirkjugarðinum. Samt varð það kirkjan sjálf sem að heillaði okkur líka upp úr skónum, hún er svo innilega kósý, lítil, falleg og sveitó 🙂
Okkur langaði í kósý brúðkaup, og það hentaði bóndanum afar vel að fá að standa bara á kirkjutröppunum og taka á móti fólki, frekar en að sitja inni í kirkju og hneigja sig til allra 😉
Innilega til lukku elska,dásamlegar myndir