…velkomin heim! Ó María, velkomin heim.
Því hjá mér áttu nú heiiiima, ó María – hjá mér 🙂
…var einhver sem að giskaði á þessa dásemd?
…ég er svo yfir mig hrifinn af henni að það hálfa væri mikið meira en nóg. Sjáið t.d. bara litinn á borðanum, og talnabandið…
…þetta er sem sagt dásemdargripurinn sem að kom heim með mér frá Húsi Fiðrildanna…
…og svo þegar að smá rökkur skellur á…
…þá kveiki ég á kertum og fell í stafi yfir því hversu falleg mér finnst styttan mín vera…
…þessi mynd er í uppáhaldi hjá mér!
…eins og bara styttan öll!
Dásamleg og mikið elsk ♥
Ég var svo viss um að flugvélin væri sú heppna!! En María er æðiæðiæði
Já sko….giskaði rétt 🙂 enda hefði ein María flutt með mér heim.
Marían er falleg, en hvar fékkstu svona flotta stjörnubakka?
Þú ert nú alveg sko 🙂
Æði pæði…. 🙂
Kv AS
Mikið er hún dásamleg og sómir sér vel á hillunni 🙂
Hæ hæ.
Er Maríu-styttan til sölu og ef svo, hvað kostar hún og hvar fæ ég hana ?
Hún er algjört æði, eitthvað svo mikill helgileiki yfir henni, ég hef átt nokkrar í gegnum tíðina en þessi er sú allra besta sem ég hef séð…alveg himnesk 🙂
Með kveðju,
IB