…og hér kemur smá pása á skipulagðri Ameríkudagskrá og örlítið innlit í þann Góða – því þar rölti ég um í gær…
…er alltaf sérlega svag fyrir fallegum blómavösum, og ég er alveg að sjá fyrir mér villtan sumarvönd í þessum…
…eins fannst mér þessir félagar bara frekar sætir og fínir…
…nei sko – ég var næstum búin að kaupa þessar skálar “mínar” – svo mundi ég að ég á víst fullt og vantar ekkert meira 🙂
…elska svona bland í poka – og hvítu bökudiskarnir eru klassík sem passa með öllu…
…talandi um hvíta klassík – helló lovlies…
…þessar gömlu og grófu könnur og krukkur, finnst mér alltaf svo flottar fyrir sleifar og þess háttar nauðsynjar…
…þessi var pínu heillandi…
…og þessi…
…og alls konar trédýr! Einu sinni málaði ég svona gíraffapar í strákaherbergið – kom skemmtilega út…
…þetta var næstum ruglingslegt – en þetta er mynd af bókum – í raun blindrammi með mynd af bókakiljum, allt er nú til…
…þessi var líka flott…
…og nei sko – fyrir konur með veikleika fyrir frönskum gluggum þá var þessi hreint yndi…
…eins gætu þessir svörtu speglar verið flottir raðaðir margir saman…
…stórsnjöll endurvinnsla – alls konar gjafapokar…
…og ugluhjörð…
…saumavélaborðin – alltaf svo dæmalaust falleg…
…meira trédýraskraut…
…þessi var mjög flott – minnti mig á vasa sem ég hef séð í fínni búðum bæjarins…
…er það bara ég sem sé alltaf dæmalausa fegurð í svona gömlum nytjahlutum?…
…eins og þessir tveir gömlu vinir, blýþungir og eftir því þreyttir…
…smá jóló og bara hellings sætt…
…awwww þessi var bara pínu peð…
…karaflan finnst mér hreint æðisleg…
…og svo spái ég alltaf smá í svona útsaumi – sennilega þar sem þetta er alveg utan minnar getu og áhugasviðs…
…þetta par var smá heillandi…
…og allt í góðu! Sumir eru erótískari í flosi en aðrir 🙂
Ég vildi nú sjá hver gerði þessa hérna! Ég meina hún mamma mín gerði bara hana Gunnhildi drottningarmóður að rugga vöggunni – en hér, hér erum við bara “all in”. Erótískar ömmur?
…og þá bækur fyrir þær líka 😉
…gamall píanóbekkur – eða með smá gæru á kominn með nýtt framhaldslíf…
…þetta hérna fannst mér alveg svakalega flott! Það væri vinna að grynna þetta borð, en það yrði líka æðislegur bekkur…
…marmaralampafótur?
…ohhh – þessir eru alltaf endalaust fallegir…
…og tekk skrifborð sem kostaði bara 6500kr…
…mér finnst þessi sérlega heillandi! Flott t.d. á bakvið sófa, svona svipað og hillan “okkar”…
…Old Charm á smá penging…
…og pinnastólarnir alltaf fallegir…
…hér smá spreyja, mála og leika sér endalaust…
…það er nú alltaf gaman að taka smá svona skrens og skoðerí.
Ekki satt?
Hvað er þitt uppáhalds?
Ég er enn að hugsa um hilluna og karöfluna.
ps. þætti vænt um að þið mynduð smella á like-hnappinn ef þið höfðuð gaman af póstinum og ekki væri nú verra að heyra aðeins frá ykkur – eins má sko deila þessu í allar áttir, eftir vild!
Alltaf gaman að taka rúnt í þeim Góða, sérstaklega þegar maður kemst ekki sjálfur 😉
Takk fyrir að bjóða mér á rúntinn í Góða….hefur greinilega engu gleymt og ert nösk á að mynda einmitt hluti mér að skapi, kartaflan, leirkrúsin,kannan….þær hvítu könnur, saumavélin endalaust flott, eins gott að vera nógu langt í burtu frá öllu góssi nú annars væri ég mætt í bið röðina strax á morgun……takk enn og aftur fyrir skemmtilegt innlit….