…ég verð að viðurkenna að gjafaleikir eru mér eiginlega ekki að skapi þessi jól 🙂
Það er svo mikil ofgnótt af þeim að það hálfa væri nóg. En endilega ekki taka því þannig að mér sé ekki annt um ykkur, dásamlegu lesendur mína og vinkonur, minn kærleikur til ykkar er óskertur og þakklæti mitt fyrir framlag ykkar til síðunnar er svo sannarlega til staðar. Helst myndi ég vilja gefa hverri og einni ykkar stórt knús og eitthvað undursamlega fallegt með þökk fyrir allt og allt.
En hins vegar, bauð Prentagram mér að gefa hálsmen, og þar sem ég á sjálf tvo stykki frá þeim, sem ég fjárfest í sjálf, þá fannst mér þetta bara fallegt og skemmtilegt til þess að deila með ykkur.
Þetta er persónuleg gjöf, eitthvað sem fer ekki mikið fyrir, og ætti að vera t.d fullkomin handa mömmu eða ömmu eða bara einhverri yndislegri vinkonu sem ykkur langar að gleðja ❤
Fyrst langar mig að sýna ykkur hvernig ég er að geyma mín hálsmen, svona þegar ég er ekki að nota þau…
…þau hanga sem sé á rúmgaflinum mínum, ásamt nokkrum öðrum…
…og mér þykir voða vænt um að horfa svona á þau um leið og ég slekk á náttborðslampanum…
…bóndinn er reyndar ekki með neitt skart hjá sér, skrítið 🙂
…en hann er auðvitað með myndirnar af krökkunum sín megin, þannig að það jafnast út. Skellti síðan smá grein þarna ofan á, svona í tilefni jólanna…
…mín megin er hins vegar komið lítið jólatré, og takið eftir fallegu skuggunum sem koma af nýju skermunum…
En yfir í gjafaleikinn góða, um er að ræða þrenn hálsmen sem Prentagram ætlar að vera svo yndisleg að leyfa mér að gefa…
Reglurnar eru:
1. Smelltu like á þennan bloggpóst og skrifaðu nafnið þitt undir, og hvernig mynd þig langar að setja á menið…
2. Skelltu þér inn á Facebook síðu Prentagram og smelltu Like á hana…
3. Mátt smella like á þessa mynd á Facebook-síðu SkreytumHús og deila henni að vild…
4. Njóttu þess að desember er kominn og jólin á næsta leyti…
Föstudaginn 18.des dreg ég síðan út 3 vinningshafa skv. random.org.
*knúzar*
Þær sem fá falleg hálsmen eru:
Ég myndi setja einhverja fallega fjölskyldumynd 🙂
Börnunum og hundinum
Það vantar alveg nafnið þitt 🙂
Myndi vilja mynd af syni mínum
Linda Geirsdóttir
Mynd af börnunum💕
Mynd af strákunum mínum 🙂
Ég myndi setja mynd af yndislega hundinum mìnum💖
Ég myndi setja mynd af börnunum mínum.
Ég myndi setja mynd af gullmolanum mínum ; )
Myndi setja mynd af syni mínum sem lést 5 daga gamall <3
Eg myndi vilja setja mynd af syni mínum 🙂
Börnunum mínum sex ❤️
Af börnunum mínum 3 <3
Mér finnst að Hera Brá ætti að fá þetta
Dásamlegt, ég myndi hafa börnin í mínu 😍
Fjölskyldumynd af okkur í ljótu jólapeysunum okkar og nota þetta fína hálsmen sem jólaskraut á jólatréð.
Ég myndi setja mynd af hundinum mínum sem ég varð að kveðja í maí sl. vegna veikinda hans <3 Svo myndi ég hugsanlega fá mér annað hálsmen með mynd af næstum 5 mánaða hvolpinum mínum 🙂
Ég myndi setja mynd af strákunum mínum 😍
Ég myndi gefa lítilli frænku þetta með mynd af henni og pabba hennar í.
Álfur kisi fengi myndaplássið fyrir sig.
Ég myndi setja mynd af börnunum mínum þremum 🙂
Myndi setja mynd af syni mínum 🙂
Ég myndi setja mynd af fjölskyldunni minni 🙂
Ég myndi setja mynd af drengjunum mínum sem fóru í jólamyndatöku um síðustu helgi 🙂
Mig langar að setja mynd af börnunum mínum og gefa ömmu minni í jólagjöf 🙂 tilvalinn jólagjöf fyrir ömmu sem á allt ❤️
Að sjálfsögðu mynd af yndislegu 3 ára dóttur minni 💖💖
Ég myndi velja fallega mynd af dætrum mínum saman, þær eru 3 og 7 ára og algjörlega yndislegar <3
Mynd af börnunum mínum tveimur <3 Nýbúin í myndatöku en það er erfitt að velja mynd!
Búin að horfa á þessi hálsmen mjög lengi og vá hvað mig langar í eitt. Þá sérstaklega með mynd af skvísunni minni 🙂
Oh, yndislegt – mynd af mér og litla snúðnum mínum eða bara honum eða hundinum okkar sem fór frá okkur í sumar eða bara kallinum eða..eða eða…
Fjölskyldumynd 🙂
Ég myndi gefa 9 ára dóttur minni menið og setja mynd af henni með afa sínum sem lést í fyrra.
Èg myndi setja mynd af fallega stráknum mínum 🙂
sonum og hundinum 😀
Langar rosalega í svona međ mynd af börnunum mínum og gleđja mömmu međ því um jólin 🙂
Myndi langa í svona fagurt men með mynd af ömmu og afa sem létust í fyrra með stuttu millibili en þau voru mér svo kær <3
Fallegu börnunum mínum
Myndi setja mynd af fallegu stelpunum mínum
Eg myndi vilja mynd af barnabörnunum mínum fjórum sem eg er sem lánsöm að vera búin að eignast síðustu tvö ár ..ásamt yngsta barninu mínu ❤️❤️Á hópmynd af þeim
Myndi setja mynd af sonum mínum..
Ekki búin að ákveða